Bónerfréttir
17.12.06  
SOS
Smá vandræði vegna þess hversu "dugleg" ég er að taka til og halda skipulagi á hlutunum... haha... if only that was the case...
Ég hef semsagt týnt blaðinu sem ég hafði skrifað heimilisfangið þitt Helga mín (og reyndar heimilisföng allra þeirra sem ég sendi kort). Gat farið á já.is og fundið öll þau heimilisföng sem ég mundi ekki... nema þitt Helga...
Er séns að fá þig til að senda mér heimilisfangið þitt... annað hvort hérna inn eða með sms-i... svo þinns fái nú jólakort frá minns :D
Með fyrirfram þökk fyrir skjót viðbrögð (kortið þarf að fara að komst í póst skilurru ;)),
Matthildur ;)

17.12.06 skrifaði Matthildur

3 Ummæli:

  • Klukkan 11:41 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Heheh fínt að hafa svona utanlandsheimilisfangasms sem gegnur manna á milli :P... en ok, ég var einmitt að hugsa um að senda kortið bara í Klukkubergið... geri það þá bara :)
    Grrreit þá er því reddað :) *skokkar á pósthúsið með jóla-jóla-kortin* :)

     
  • Klukkan 3:08 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Æjjj dúllan mín:) Bara frábært ef það fer heim á Klukkó..ég er jú á leiðinni þangað... jeyyy eftir bara 3 daga:D Annars er líka hægt að gera eins og latir baunar ætla að reyna að gera- láta ykkur fá það á föstudagskvöld;) haha...á ENNÞÁ eftir að skrifa -omg- aulagangurinn í hámarki á þessu heimili...deeeem! Luv hb

     
  • Klukkan 5:53 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Hahahaha...hefði nú kannski átt að halda kj... hérna í fyrra kommenti því nú lítur allt út fyrir að Helgan klikki feitt á jólakortunum í ár- ekki búin að skrifa eitt einasta og hún á leiðinni heim 2morrow!!! Eeeeeen... við skötuhjú klikkum nú aldrei ALVEEEEEG og því bendi ég ykkur á að tékka meilin ykkar hmmm... hvað eigum við að segja seinni partinn á morgun;) Jámm en annars er pökkunar-paník á hæsta stigi í gangi hérna... fokkk hvað við erum búin að vera vangefin í jólagjafakaupum maður sheeeisse... og ég þarf náttla að taka með mér MONSTRÖSSS möppu dauðans með glósum til að lesa þannig að það verður "stöööð" að dröslast með allt helv... draslið! En jæja..er ss. á leiðinni til Íslands- vona nú að það sé PÍNU meira jóló en hér- ennþá þetta blessaða vorveður og auðvitað ekkert skreytt eða bakað á þessu heimili þetta árið- voða weird e-ð! Well..ætla að fara að rembast að halda áfram- svo skóli í fyrramálið-ferjan kl: 12.45 og svo flug um kvöldið:) Hlakka ÓGÓ til að sjá ykkur krúttin mín. Hafið það nú notó- knúúúz HB

     

Skrifa ummæli

<< Til baka