11.3.08
well hello hello
Kraftaverkin gerast enn....mín bara að skrifa inn á bónerinn. Sá að Bína var nú aðeins búin að reyna blása lífi í þessa blessuðu síðu okkar ákvað ég að prófa aðeins þar sem mér loksins tókst að signa mig inn til að geta bloggað. Hvað getur maður annars sagt......held ég sé með lélegustu bloggurum sem fyrirfinnast og hef aldrei neitt að segja. jú nema hvað haldiði, ég fór á námskeið í gær sem er um sjúkdóminn minn bæði fræðsla og hvernig hægt er að lifa sem best með honum. Svo í lokinn er farið að tala um reykingar og einhver ruglingur hefur orðið þegar ég lenti á spítalanum og fékk þær upplýsingar að ég mætti alls ekki reykja, því í eina skiptið í allri læknisfræði hafa reykingar jákvæð áhrif og það er akkúrat sjúkdómurinn sem ég er með. Ekki að þeir væru að mæla með reykingum þvert á móti tóku auðvitað fram að það væru miklu fleiri neikvæðir þættir við reykingar. Og fólk sem hefur aldrei reykt á alls ekki að prófa það hefur held ég mjög litla virkni fyrir þá. En það hafa komið tilfelli þar sem fólk fer bara aldrei í lægð með sjúkdóminn ef það hættir að reykja og sumir þurfa, til að halda sjúkdómnum niðri að reykja 3 sígarettur á dag.
Annars er nú allt með feldu hér maður er bara farinn að vera spenntur fyrir Danmerkurbrúðkaupið auðvitað og ekki leiðinlegt að við séum öll að fara saman og væri rosalega gaman ef við myndum kannski ná að vera saman eins og einn dag í Köben, fá okkur kannski að borða og fara á smá rölt. Annars erum við Berglind í smá varnræðum með sumarhúsið sem við vorum búin að finna, vorum ekkert smá ánægðar með, góðum stað, flott hús og á góðu verði þannig við auðvitað pöntum það, nema hvað þegar við fáum mail um greisluna þá er það miklu dýrar en tekið var fram á heimasíðunni.
jæja snúllurnar mínar fyrst ég get hent svona eins og einni færlsu hér inn ættu þið að geta það líka ;o)
11.3.08 skrifaði Linda
23.1.08
Það er algjörlega allt dautt hérna....
Er EINHVER sem kíkir hingað inn lengur??
Sæll
23.1.08 skrifaði Bína
1.10.07
Ja, góðan daginn!
tak for sidst! Ætli allir hafi ekki vaknað með sperrur í kinnunum í morgun??? minns allavega- og stinnari magavöðva;o)
Hilsen..
1.10.07 skrifaði Bína
28.4.07
Hæ kjútís :)
Takk fyrir síðast :) :) Þetta var ógó gaman... maður var nú orðinn heldur skrautlegur og meeeen er ég borga fyrir það í dag :)
Ég er búin að hlægja mig máttlausa yfir myndunum, omg... HAHAHAAAA... þið verðið að skoða þær og kannski kommenta á þær (held að það sé hægt) ;) þær eru hérna sama lykilorð og á hinni síðunni (ef þið munið það ;))
Jæja varð bara að sjera þessu með ykkur,
SEEYA LATER LUVS
28.4.07 skrifaði Matthildur
19.4.07

GLEÐILEGT SUMAR
19.4.07 skrifaði Matthildur
6.4.07
ÞÖGNIN ROFIN!!
Jahérna- mér er farið að lítast svo illa á bloggþögnina MIKLU að ég ætla að láta verða að því að kalla *haaaaallóóó* og vonast til að e-r svari...haha! Hvað er eiginlega að frétta af Íslandi? Eru allir við heila heilsu? Er fólk alveg hætt að nenna að kíkja hingað inn, eða eru allir svona HRIIIIKALEGA busy?? Hvað er að gerast og hvað er fólk að bralla?? Allavega er ÉG alltaf í góðum gír- við ágætis heilsu- kíki enn hingað inn og er alltaf að "skólast" eeeen er jú eins og eflaust margir aðrir í dááááásamlegu páskafríi núna:) Er jú að reyna að lesa smá í fríinu, en ætla nú líka bara að halda áfram að njóta þess að geta verið heima og haft það pínu næs. Annar styttist jú í próf þannig að það er eins gott að halda bókunum á lofti maður! Byrja í prófum 6.júní og er búin 15. þannig að þessu er lokið frekar snemma í ár svona miðað við oft áður. Kem eflaust e-ð heim að vinna í sumar og svo jú auðvitað í BRÚÐKAUPIÐ maður;) Rooooosalega hlakka ég til þess- verður geggjað ... ég EEEEEELSKA brúðkaup! Ss. strax farin að hlakka miiikið til og vona að við náum að bralla margt skemmtilegt saman í sumar! Talandi um skemmtilegt að þá er jú næst á dagskrá að skella sér með Begz að hitta Beyonce vinkonu okkar...sjettörinn hvað það verður gaman- vantar þó bara ykkur hinar elskurnar:( (efl. enn hægt að redda miðum þó;)) Hlakka auðvitað roooosa mikið til að hitta þig Berglind mín- snilld að þú nærð að koma með mér á öl ad libitum og allez;)- nú er bara að biðja fyrir GEGGJUÐU veðri og þá verður þetta varla betra:) Jæja..ætla að fara að hætta þessu blaðri og reyna að koma mér í lestrargírinn! Vona að þið eigið allar yndislega páska og hafið það sem allra allra best. Plííííz látið í ykkur heyra hérna svo ég geti andað léttar..haha (ég veit að þið kíkið hingað inn..múhaha) Love you guys...kizz og knúúúúz HB
6.4.07 skrifaði Helga Björt
25.2.07
Afmæliskaffi
Í tilefni af afmælinu hans Baldvins ætla ég að hafa opið hús eftir 19:00 á morgun, þ.e. mánudaginn 26. feb, fyrir þá sem vilja koma og fá sér smá kaffi og gotterí með.
25.2.07 skrifaði Linda