Bónerfréttir
13.10.06
How does the time fly???
Föstudagskvöld og planið er að fara snemma í háttinn;o) Var að knúsa Logann bless- hann er að fara á októberfest. Væri alveg til í að fara með honum.... sko til þess að fá mér bjór og allan pakkann. Hljómar kannski ekki mjög vel hjá óléttri manneskjunni... Væri bara alveg til í að vera laus við bumbuna. En þetta styttist, komnar 38 vikur... og ágætt að einhver sé að sletta úr klaufunum áður en nýja krílið mætir.
Annars er maður bara voða girnilegur- með fílsfætur og svona. Þoli ekki bjúg!!!! (Anna æ fíl jor pein). Er í því að þamba vatn þessa dagana- missti mig nefnilega aðeins í drakúlabrjóstsykri. Það eru engin takmörk fyrir því hvað mér finnst hann góður! Svo er maður bara duglegur að fara í sund og vona að bjúgurinn fari.... ef það dugar ekki fer hann eftir 2 vikur- ég skal vera á tíma!!!! Hehehehe
Jæja.. vonandi sjáumst við flestar á morgun í afmælinu... ég kem þrammmmmmandi ;o)
Fíllinn hún Nellý
13.10.06 skrifaði Bína
4 Ummæli:
Klukkan 9:22 e.h., sagði
Nafnlaus…
Já omg hvað tíminn flýgur hratt... það er án gríns ALLTAF helgi... ekki að það sé neitt slæmt ;) eeeennnn VÓÓÓ 2 vikur, spennan að magnast :D Hlakka til að sjá ykkur í afmælinu á morgun, og svo verður nú að fara að verða hittingur... way to long since last time ;)
-MS-
Klukkan 7:53 e.h., sagði
Nafnlaus…
Fíllinn hvað!!!!
Þú lítur ekkert smá vel út, allir að tala um hvað þú værir nett og flott.
Allavega takk fyrir drengin og ekkert smá gaman að fá ykkur allar sem voruð á landinu, þetta tókst nú sem betur fer ágætlega(átti alls ekki vona á því þar sem ég var að klára skreyta kökuna korteri áður en afmælið átti að byrja)
Anyway hlakka til að hitta ykkur á fimmtudaginn.
Klukkan 3:20 e.h., sagði
Bína…
Thanks you guys... þvílíkt búst að fá að heyra svona þegar manni finnst maður vera þrútinn og ljótur...
MMMmmmm og takk aftur fyrir mig/okkur í gær. Þvílíkar kræsingar! Alltaf gott að eta hjá Lindu....
Klukkan 3:35 e.h., sagði
Nafnlaus…
Ég var einmitt að hugsa það eftir afmælið að þú lítur ekkert út eins og fíll!!! Þú ert bara með flotta og fína kúlu en ekkert umfram það:) Alveg stórglæsileg bara:)
Hlakka til að sjá ykkur á fimmtudaginn aftur:)
Skrifa ummæli
<< Til baka