Bónerfréttir
29.9.06  
Góðan daginn alle sammen!

Bína talking.... furða mig á því hvernig í andsk... geti verið föstudagur?? Tíminn flýýýgur og mánuður í nýjasta meðliminn.... Mér finnst það svo STUTT! Get ekki beðið og þá finnst mér það svo langt ;o) Maður er orðinn ansi þreyttur þrátt fyrir litla bumbu.... Man á þessum tíma með Bjart gat ég ekki einu sinni komið mér sjálf í skó!
Rölti Smáralindina í gær með Begs og Hlín og MEN! fæ ég sko að finna fyrir því í nótt og í dag! Loginn fór með strumpinn á leikskólann og ég í heita sturtu og búin að vera að hvíla mig síðan ég vaknaði hehehe. Það er nú meira hvað maður er í góðu formi :o/ En samt líður tíminn - sem segir manni bara hvað maður er þreyttur því maður er svoooo feginn að hafa þennan tíma til að hvíla sig (meikar þetta sens?) Það hellllltist t.d. yfir mig happy-tilfinningin áðan yfir því að vera bara heima að fá mér te og brauð (nú hlær Logi) og geta hvílt mig, lesið, horft á Friends, farið í tölvuna og bara eitthvað þangað til ég rölti og sæki yfirstrumpinn! Það þarf greinilega ekki mikið til að gleðja mann þessa dagana.
Svo horfi ég á nýmálaða rimlarúmið og get ekki beðið með að setja það saman og setja fína sængurverið á og stuðarann sem ég er nýbúin að kaupa í það- og svo auðvitað nýja barnið... og verð ennþá glaðari.

Djísús, mætti halda að mín væri á uber-gleðipillum..... svei mér þá!
Jæja, ætla að fara að lesa...og hvíla mig ;o)
Vonandi knúsuðuð þið einhvern í myrkvuninni í gær ;o)
-Later

29.9.06 skrifaði Bína