Bónerfréttir
24.8.06  
Jææææja, þá er maður bara kominn í "orlof" og nýbúin að vera í sumarfríi. Litla kúlan var of lítil að mati ljósmóður þannig að minns var sendur í skoðun á miðstöð mæðraverndar þar sem ákveðið var að mamman væri nú ekki stór og mætti því alveg vera með litla kúlu;O)
Þetta var mjög áhugaverð upplifun: Loginn kom með mér. Við áttum að tala við ljósmóður og fæðingarlækni, nema fæðingarlæknirinn lét ekki sjá sig í rúman klukkutíma og Logi sveitatútta og ljósmóðirin bara á tjattinu um heima og geima, um tölvur og hvað var í kastljósinu í gær og ég veit ekki hvað. Þetta hefði verið freeeekar vandræðalegt ef ég hefði verið ein því ég er kannski ekki aaaaalveg svona skrafhreifin/hreyfin.
Loksins fannst læknirinn sem "hafði áhuga á að þreifa leghálsinn hjá mér" (mhm- áhuga. ððððakk). Kom þá í ljós að leghálsinn eftirsótti er orðinn mjúkur og styttur- sem þýðir engin vinna í tvær vikur :o( Ekki lyfta Bjartastrumpi og ekki gera neitt sem er rembingur (hvernig á ég að kúka?? hehe). Koma svo aftur í skoðun eftir viku að tékka. Já, þetta er skemmtilegt! :o/
Svo er vaxtarsónar á morgun- til að tékka á hvort allt sé í lagi með litla mallakútinn en ég hef voða litlar áhyggjur- það eru þvílík spörkin og hjartslátturinn fínn og virðist þannig séð allt í lagi.... og ég er nú ekki svoooo lítil! Það er allavega ekki hægt að segja annað en að það sé fylgst vel með manni..
Þannig er staðan á mr. B í dag. Jammogjá. Ég trítla með Bjart á leikskólann kl. 9 á morgnana og svo er ég bara að bora í nefið.. nema kannski ef ég drullast til að fara að undirbúa eitthvað EF krakkinn kæmi. Þarf að fara að gera lista yfir allt sem vantar og fara að þvo og svona. Vonandi fæ ég nú að fara að vinna svo í sept. Annars höldum við Begs lífinu í hver annarri- með viðkomu í bakarí í hvert skipti ;o) hehehe
Endilega kikkið í heimsókn og ekki vera hræddar við að þurfa að taka á móti barni í leiðinni- ég skal halda því inni ;o) (hehehe nú kemur enginn)

24.8.06 skrifaði Bína

5 Ummæli:

  • Klukkan 4:34 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Hahaha... nú mætir enginn :) Hehe jú maður lætur nú ekki eitt lítið kríli stoppa sig, hugsa að það sé ekkert mál að grípa eitt svoleiðis... GRÍÍÍN, veit að þetta er vont en lagast allt við að fá hann í fangið :) (bara að vitna í sögur sem ég hef heyrt í gegnum árin ;))... bleeeeee... er að fara yfirum held ég. Var að telja tímana sem ég hef unnið síðan ég kom úr sumarfríi (hef ekki átt frídag síðan þá) og taldi rúma 140 (á 14 dögum) sem þýðir um 10 tíma á dag... ómægooooood... Á að vera búin að vinna 80 tíma á þessum 2 vikum EN 140 (datt ekki í hug að þetta væri svona mikið). Svo æm só sorrí en ég get ekki komið við á næstunni til að taka á móti mallakútnum því ég sé fyrst fram á frídag eftir rúma viku þegar ég á fríhelgi.... jeiiii gaman í Steinahlíð (ætti kannski að flytja inn bara) :P

     
  • Klukkan 7:24 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Hlýddu því bara sem sagt er að gera ekki neitt sem reynir á, það er skárra að mega það ekki og geta samt gengið um heldur en að þurfa að liggja því maður nennti ekki að fara eftir hinu:) Vonandi heldur krílið sér bara sem lengst inni og vonandi hefur þú það sem best:)

     
  • Klukkan 5:56 e.h., sagði Blogger Bína…

    takk fyrir það. Það eru allir búnir að vera óóótrúlega góðir við mann síðustu daga... En áhyggjur af krílinu voru óþarfar- Það dafnar bara vel og er orðið 1750 gr. (á að vera 1500 miðað við meðgöngulengd) og allt kom vel útúr sónar. Ekki veit ég hvar ég geymi þennan hlunk;o) Maður ætti bara að þakka fyrir að vera nettur fyrst allt er í orden!

     
  • Klukkan 5:58 e.h., sagði Blogger Bína…

    og ég held bara áfram að taka því rólega....

     
  • Klukkan 7:44 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Það var nú gott að heyra að allt er í lagi hjá krílinu... better do what the doctor orders. Farðu vel með þig ;)
    -MS-

     

Skrifa ummæli

<< Til baka