Bónerfréttir
22.6.06
Helló sætó
Hvað syngur í liðinu? Er ekki allir að verða spenntir fyrir laugardeginum, minns er að fá hálsbólgu og kvef sem ég ætla rétt að vona að verði ekki neitt meir þar sem ég ætla að djammmmma á laugardaginn.
Við hjónaleysin skelltum okkur í útileigu síðustu helgi í grenjandi rigningu en sem betur fer voru Smári og Bacia með bústað sem við gátum þerrað okkur og haft notó í, sváfum eiginlega bara í nýja tjaldvagninum. Oh, já fyrir ykkur sem ekki vitið þá erum við búin að kaupa okkur tjaldvagn sem við ætlum að reyna vera dugleg að nota í sumar þær örfáu helgar sem við erum ekki upptekin. Svo er Siggi byrjaður í nýju vinnunni og líst bara ansi vel á þetta, munur að þurfa ekki að mæta fyrr en 9 og vera alltaf búin kl 17, þetta hefur bara ekki gerts í háa herrans tíð að kallin sé komin heim um hálf sex. Vonum bara að það haldi áfram. Núna telur maður auðvitað niður dagana þangað til maður fer í frí sem er ekki fyrr en 14. júlí takk fyrir en gvöð hvað það verður næs að eiga frí til 14.ágúst.
Mér var nú að detta í hug að við myndum fara að gera eitthvað saman þegar Helgan væri komin til landsins og nú eins og sumar ykkar vita ætlum ég og Siggi að halda partý 14. júlí bæði vegna afmælis míns og svo er aðalástæðan Sálarball á NASA en mig langar nú samt að gera eitthvað meir ef þið eruð til og sá þessa skemmtilegu auglýsingu um Kajakferðir sem mér líst svolítið vel á og er örugglega gaman að gera saman. Líka þar sem þetta er ekki það langt í burtu og þetta kostar ekki brjálaðan pening. Hvernig líst ykkur á þetta? Væru þið til í eitthvað svona? og kallarnir auðvitað með ;o)
Linda out!
22.6.06 skrifaði Linda
2 Ummæli:
Klukkan 12:01 f.h., sagði
Nafnlaus…
Spennan magnast;) Bannað að vera veik á laugardaginn :D Við skulum sko djaaaamma
OOOhhh minns er að fara í sumarbústað með vinnunni 14. - 19. júlí, deeeem :( En verðum samt pottþétt að gera eitthvað skemmtó með Helgunni, veit ekki alveg hvernig það fer í hjartað mitt (litla) að fara í kajakferð :S hehe...
SeeYa på lördag ;)
Klukkan 9:16 f.h., sagði
Nafnlaus…
NEI NEI NEIII...enginn bölvaður sumarbústaður MATTHILDUR!!! Þú veeeerður að koma með:( Hlakka geeeggjað til- verður svoo gaman að sjá ykkur allar. Vildi reyndar að þetta væri helgina eftir þar sem ég er næstum búin að "lofa" dönsku vinkonu minni sem er að koma í heimsókn að fá að hitta ykkur og tjútta..hehe- sagði henni náttla ALLT um hvað þið væruð ÆÆÆÆÆÐISLEGAR og hún er voða spennt..heehe;) Annars hljómar ógisssslega vel að gera e-ð svona gaman saman- en reyndar var ég að heyra að það er búið að bóka á mig þarna um daginn þannig að ég verð í Kefló:( Reyndar er ég líka með músahjarta hvað svona varðar...en WHAT THE FUC... maður lifir nú bara einu sinni for helv...;) og ég er til í "ALLLLLT" (innan siðferðismarka) eftir að hafa LIFAÐ AF PRÓFATÖRN DAUÐANS...jeeee;) well..langloku komment maður... ætla að drífa mig að fara að TJILLLLLLA:D múhahahahahahahahahahahahaha luv jú.. kent veit tú sí jú...knúz
Skrifa ummæli
<< Til baka