Bónerfréttir
2.6.06
Helló görlís.
Föstudagskvöld og ég að hanga á netinu- ekkert í sjónvarpinu.....kallinn ekki heima. Hann fór í Viðey og ég nennti ekki með, sé svoldið eftir því núna. Skammast mín hálfpartinn fyrir að segja það að ég hef bara aldrei komið í Viðey... :o/ Hef heldur aldrei farið á vestfirði eða uppá Esjuna. Hugsa samt stundum um það- og það er á to do listanum;o)
Nú getur maður farið að telja dagana í sumarfrí fyrir alvöru- styttist yndislega í það! Kent veit! Þessir krakkaormar geta alveg gert mann gráhærðan...og hafa lítið fyrir því hjá mér þessa dagana. Kannski er það óléttan, kannski... já ég veðja á það. Og haldiði að það sé ekki að poppa út kúla núna?! Kominn tími til- 5mánuðir ...fjúh- maður verður farinn að rembast áður en maður veit af! Nú hugsar maður: Stelpa? strákur? stelpa? strákur? Langar ógeð mikið að kíkja í næstu viku en mín yndislega forvitna fjölskylda ætlar ekki að láta okkur komast upp með að vita og ekki segja. Við fáum ekki frið. En ég læt þau varla stjórna því hvort ég viti kynið því mig laaaaaangahahahar. Ég skemmti mér þá bara við það að fokka í þeim hehehehe...
Ég er að hugsa um að fara að koma mér í rúmið enda klukkan að verða 12! usss.. löngu kominn háttatími!
Góða nótt og skál í toblerone... smá meira.... mmmmmm
2.6.06 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka