Bónerfréttir
19.6.06
Hæ. Ég nenni ekki að fara að sofa... Er EKKERT þreytt því ég svaf til hálf 12 í morgun, hékk á náttfötunum til 2, fékk mér í gogginn og eldaði grjónagraut á meðan ég talaði við Begs í símann. Þá var klukkan bara orðin 4 og tími kominn til að sækja yfirstrumpinn! Það sem það getur orðið lítið úr deginum hjá manni! Meikaði samt að kaupa mér bikiní í gellubúðinni Samkaup og vígja svo bikiníið í sundi... Hefði líka alveg farið í heimsókn til Lilju þegar hún freistaði mín með nýbökuðum pizzasnúðum ef ég hefði verið á bíl. Ég er búin að senda Logann í vinnuna tvisvar núna á bílnum svo ég komist ekki neitt og verði heima hjá mér að þrífa í sumarfríinu mínu.... það er ekki að virka neitt svakalega vel. Í annað skiptið hringdi ég í múttu og dró hana í bæinn og hitt skiptið var í dag. En, kommon, ég er ekki búin að vera viku í fríi... kött mí somm slakk...
Hvernig var 17. að gera sig hjá ykkur? Minns fór ekki einu sinni í skrúðgöngu hehehumm... Fór samt niðrá tún í rigningu voða huguð en sá fram á að mitt bak myndi ekki meika gönguferð um hálfan bæinn. Svo beið mútta líka með rjómapönnslur og eina brúna þannig að við drifum okkur bara ;o) Mamma klikkar ekki! Mmmm... Svo skildum við frekjustrumpinn eftir og fórum í þjóðrembuhandboltapartý til Palla og Erlu. That felt goooood. Þar var tekin önnur umferð á kræsingar og punkturinn settur yfir i-ið með því að fara út að eta strax á eftir! Svo fór mín bara á pöbbarölt fram á nótt með bumbuna! Jájájá... Næsta bar-Hressó-dubliners. Þannig var rúnturinn. Brjálaður stemmari bara! Var alveg í þynnkufíling að mæta í afmæli til GB á sunnudaginn og raða í mig pizzu! Langt síðan síðast.
Jæjajá... best að fara að klemma saman augun...
Munið að ég er í sumarfríi og greinilega bara í hangsinu.. svona ef ykkur vantar að heimsækja einhvern eða bjóða einhverjum í heimsókn eða fara í lunsj eða bara eitthvað...
Nighty night
19.6.06 skrifaði Bína
1 Ummæli:
Klukkan 8:24 e.h., sagði
Nafnlaus…
Hey ugl... Minns er voða mikið til í að hitta þinns :D
Ég er að hugsa um að skreppa í Smáralindina (og jafnvel Kringluna) á morgun, vekur það einhvern áhuga?? Koll mí ef þig langar með, gætum jafnvel fengið okkur löns :D
-MS
Skrifa ummæli
<< Til baka