Bónerfréttir
26.4.06  
Oh my god
Skellti mér í bíó með mömmslu og nokkrum frænkum og ég held að ég hafi aldrei hlegið jafn mikið af einni mynd. Hún var mögnuð, þið verðið bara að sjá hana já og hún heitir Prime. Það var hlegið svo mikið í salnum að það heyrðist ekki í myndinni og mamma greyið var við það að pissa í sig að hlátri að hún gat ekki hlegið meir, svo sá maður hana bara fara í heljarstökkum á toilettið í hlénu. Svo er hún líka voða sæt, langar að segja aðeins meir en þá er sjens að ég eyðileggi fyrir þeim sem ætla á hana og það ætla ég ekki að gera.

Annars er bara allt í rólegheitum bara fermingar helgi eftir helgi og mín er nánast eins og single þessa dagana. Heppin ef ég næ að sjá kallin áður en ég fer að sofa og svo er hann farinn í vinnunna þegar ég vakna, við erum bara bæði orðnar snilldar "bellur".
Svo hef ég bara voða lítið annað að segja þannig

Linda out!

26.4.06 skrifaði Linda

4 Ummæli:

  • Klukkan 11:35 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Prime, er það myndin með Umu Thurman?

     
  • Klukkan 6:34 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    hehe ég ætlaði að svara Matthildi með staðföstu nei-i, því ég er búin að sjá myndina með Umu Thurman auglýsta svo oft og langar einmitt að sjá hana og hún er sko ekki auglýst undir nafninu Prime í Danmörku. Hér heitir hún nefnilega Kærester, og ég hafði hreinlega aldrei séð upprunalega titilinn!!

     
  • Klukkan 6:36 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    En til að svara Matthildi, þá er Prime myndin með Umu Thurman og Meryl Streep, sjá hérna

     
  • Klukkan 8:30 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Ok takk Eyrún mín... bara að spá ef maður vildi skella sér í bíó svona mitt í stressinu... jeeeeee líklegt ;)
    Annars er þetta allt að smella, skila lokaverkefninu á þriðjudag :D jeiii... get ekki beðið eftir að sleppa út úr skólanum þann 15. maí

     

Skrifa ummæli

<< Til baka