Bónerfréttir
25.3.06  
Já HALLÓ!
Aaaansi langt síðan maður hefur tjáð sig eitthvað hérna... Hvað segiði annars? Allir á lífi? ;o)
Það er nú ekki mikið að gerast hjá manni þessa dagana. Er þó farin að telja niður í páskafrí... og á meðan magnast heimþráin austur :o( Það verður því miður ekki farið í sveitasæluna þessa páskana.... en ljósi punkturinn í þessu er að við förum til sweet Barcelona á annan í páskum! Ahhh sól og læti. Þar verður eflaust geðveikt næs- en enginn strumpur með í för- bara gamla settið. Já við höfum gott af því- hætta þessu væli! Það er búið að plana ferðina frá a-ö fyrir okkur. Flottir veitingastaðir, skoðunarferðir og búðarferðir hehehe. Svo kem ég bomm heim samkvæmt spám og óskum ALLRA í kringum okkur! Maður er sko undir pressu og Barcelona er svoooo rómantísk borg að okkar annað barn hlýtur að koma undir þar. Já, já við sjáum til...
Hvernig hljóma annars páskarnir hjá ykkur? Verða einhverjir útúr bænum? Er ekki spurning um að taka í spil, gömlu gellur?;o) Rauðvín og ostar og snakk og nammi eins og í gamla daga.... hljómar vel.
En- kannski ég fari nú að þrífa pleisið á meðan Bjartmanninn sefur... ekki vanþörf á :oS
Förum nú að drífa okkur í hitting!!!
miss u

25.3.06 skrifaði Bína

17 Ummæli:

  • Klukkan 3:32 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    hahaha... já BOMM og læti- þú segir nokkuð;) ..vá..verður gaman hjá ykkur! Jiminn- ég er farin að hlakka svooo til að koma í heimsókn "heim"...bara nokkrir dagar! Ég TREYSTI á hitting(-A) bara svona svo þið vitið sko:) Hvað segiði svo um smá tjútt kannski þann 14.ap??? hlakka ótrúlega til að sjá ykkur krúsís og vona að þið getið tekið frá tíma til að hitta tjelluna! Luv jú gæs;) knúz HB

     
  • Klukkan 8:50 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Já eins gott að koma bomm heim frá Sweet Barcelona... geðveik borg (alla vega það litla sem ég sá af henni þegar ég fór út með Steinó um árið ;)) Þið verðið að standa undir væntingum ;) OOOHHH hvað ég væri til í að vera á leiðinni í sólina núna, get ekki beðið eftir SUMRINU... aaaahhhh... það verður lovlí.
    Og Helgs audda hittumst við, allir að taka frá 14. (eru það páskarnir eða??)

     
  • Klukkan 7:29 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Ef þú kemur BOMM heim frá Barcelona, þá hlýturðu líka að vera komin með nafn á barnið!! Barcelona!! Svona eins og fræga fólkið gerir;) Þyrfti bara aðeins að snúa á mannanafnanefnd;)

    Annars verða páskarnir nú ekki spennandi hjá mér, fæ væntanlega bara frí á páskadag (jú ég er að spá í að leyfa mér það...) en annars bara skrifa, skrifa, skrifa... Maður lætur sig hafa þetta þar sem þetta er ALVEG að verða búið og þá er ég komin í SUMARFRÍ (eða meira þegar við erum komin heim, held að þessir 9 dagar eftir skil og fram að flutningi verði seint kallaðir frídagar...)

    Hlakka til að hitta ykkur þó það verði nú ekki alveg núna um páskana:)

     
  • Klukkan 10:45 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Hahaha já góður Eyrún, Barcelona, skiptir engu hvort það er strákur eða stelpa... það væri audda bara kúl sko hehe

    En vá hvað það er orðið stutt í þetta hjá ykkur, hlakka til að sjá ykkur og knúsa STÓRU börnin ;) hvenær er aftur dagsetningin á heimferðinni??
    SPENNÓ!!!

     
  • Klukkan 11:04 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Jú, þetta er auðvitað alveg unisex nafn;)

    Við komum annars heim 10. maí, styttist heldur betur í það.

     
  • Klukkan 12:22 e.h., sagði Blogger Bína…

    Hahahaha já Barcelona litli/litla! Það væri svoldið klikk ;o)
    Er ekki 14. tilvalinn í hitting?? Hlakka geðveikt til- og kominn tími til. Það er eins og við séum allar í sitthvoru landinu þessa dagana....

     
  • Klukkan 9:50 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Júmm líst vel á 14. Hlakka líka SVO til... Allt of langt á milli hittinga :( Já í sitthvoru landinu, pældu í því... og við sem búum allar (sem búum á Íslandi sko....) í sama bæjarfélaginu... og við hittumst ekki einu sinni í búðinni, ómæ ómæ... How big can one small town beeeeeeee.... haha

     
  • Klukkan 10:18 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Minns er sko meir en til í hitting þá, er gjörsamlega að mygla heima þar sem kallinn er gjörsamlega að vinna 24-7 sé hann aldrei og kemst nánast ekki neitt, þörfin er orðinn gífulega mikil hjá minni. en svo er auðvitað hægt að skella sér á austfirðingaball á lau þar sem kóngulærnar ætla aðeins að sýna smá hljómsveitartakta.

    Já Bína mín nú er spurning um hvort þú komir Bomm heim eða hvort þú sért ekki bara nú þegar orðin BOMM???? Hef það svo sterkt á tilfinningunni að einhver okkar sé komin með köku í ofninn og þar sem það er ekki ég og hef ekki mikla trú á að það sé Eyrún, þó veit maður aldrei hvort súpermamman ætli bara að verða ofursúper! En nú er bara bíða og sjá, hver ykkar er næst og hvort bauninn er komin???

    annars er ég alltaf til í hitting og þó kallinn minn sé auðvitað aldrei heima þá er alltaf hægt að kíkja til mín.

     
  • Klukkan 10:54 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Linda, ég var einmitt að hugsa þetta í gær, hvort hún væri kannski bara nú þegar orðin ólétt... væri nokkuð spennandi:) Það er alveg nokkuð bókað ekki ég, það verður beðið alveg slatta lengur með næsta;)

     
  • Klukkan 1:45 e.h., sagði Blogger Bína…

    Vá þið eruð ansi góðar! draumfarir og tilfinningar ;o) Ef einhver er bomm veðja ég á Begs eða kannski Helgie??
    Ég skal annars láta ykkur vita hvernig Barcelona fer ;o);o)

     
  • Klukkan 2:57 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    hehe það hlýtur bara e-r að vera ólétt... bara spurning um hver;) Mig dreymdi auðvitað Berglindi um daginn en ég verð seint talin berdreymin þ.a. að það að ég hafi dreymt hana útilokar hana næstum því;) (bara næstum því;))

    Bína fannst mér koma til greina þar sem hún fór að minnast á þetta svona sjálf, spurning hvort hún hafi verið að hinta okkur án þess að segja;)

    Helga gæti nú alveg komið til greina núna, hún virðist ekki þora að svara núna allavega;)

    Linda reynir að benda á að hún haldi að e-r sé ólétt, spurning hvort það sé hún sjálf en vilji ekki kjafta strax;)

    Ég sjálf, það kæmi mér manna mest á óvart og þokkalega ekki komin jákvæð prufa eða á planinu;)

    Svo til að benda á þær sem ekki hefur áður verið bent á, þá er spurning hvort Anna María eða Matthildur séu e-ð að stríða okkur;)

    Hver sem er ólétt (ef einhver þá á annað borð;)) þá öfunda ég hana alveg smá:) Ég er aftur farin að sjá óléttu á e-u rósrauðu skýji þar sem allt er æðislegt, eins og ég muni ekki margra mánaða ælu, yfirlið, þreytu, verki og fyrirferð;)

     
  • Klukkan 5:46 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    wahahahahahahahahahahahahahahaha..... ERUÐ ÞIÐ ALLAR TÓTALLÝ AÐ TAAAAPA YKKUR ELSKURNAR??? HAHAHA- ekkert smáááá fyndið maður! anyways- bara til að róa ykkur aðeins.... "IT'S NOT ME"!!!!! See ya sooooooon snúllur;)

     
  • Klukkan 7:12 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    hahaha, díses... þið eruð kreisí girls!! 16 komment um óléttudrauma og -tilfinningu... hehehehe... yndislegar :)
    Bína, Bína!! Held að það sé hún...;)

     
  • Klukkan 7:15 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Jæja ok það voru bara 14 komment... alla vega langt síðan að vart hefur verið við LÍF á þessari síðu (hefur vart verið við lífsmark ;)). Ef ólétta er það sem til þarf þá fagna ég því... HÚRRA!! :D

     
  • Klukkan 8:08 e.h., sagði Blogger Bína…

    hahahah já þetta er alveg fyndið!
    Liggur við að maður sé farinn að efast sjálfur.... alveg spurning um að fara að kaupa óléttupróf (þá hefði maður kannski ekki dottið svona í það í bústaðarferðinni :oS) Sé annars að ég er með vinninginn hérna, sem styður kenningu Begs. Veit að Loginn yrði ánægður með það....
    Hins vegar bendi ég á Lindu- veit að hana langar ;O)

     
  • Klukkan 10:17 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Já go Linda go... verst að það skuli þurfa karl til... veit að hann er lítið heima þessa dagana ;)Þá er bara að nýta tímann vel hehe

     
  • Klukkan 9:55 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    hehehe.....

    Get sko alveg fullyrt það að það er ekki ég þar sem rósa frænka var í heimsókn hjá mér í hvorki meira né minna en 3 vikur takk fyrir.

    Það væri þá eitthvað svakalegt kraftaverk ef það væri ég.

     

Skrifa ummæli

<< Til baka