Bónerfréttir
7.2.06  
Well well well...
Hvað er nú að frétta af ykkur bónerum, maður er bara gjörsamlega orðinn sambandslaus, hittir orðið varla neinn þessa dagana, allir svo bizý. Hef nú bara ekki hitt hana Matthildi mína í ár og aldir, hafði mig nú í það að skella mér í kaffi til hennar Önnu Maju eitt kvöldið og svo ef maður er heppin hittir maður Bínu á stigaganginum og nær að segja nokkur orð. Svo spjallar maður bara við hinar á msn eða Berglindi í síma. Þetta er nú orðið ansi lélegt (segi ég sem mætti ekki til Berglindar síðasta sunnudag úpps...) kannski ekkert skrítið að mér finnist ég vera sambandslaus. En vonandi fer nú að róast í vinnunni þar sem ég er að vera búin að gera upp og stemma af síðasta ár. Annars er bara allt í gúddý, verð nú að viðurkenna að ég er að deyja úr öfund út í Berglindi að vera fara til Tælands í hita og fínerí og komast aðeins af þessu skeri hérna. Væri sko lítið meir en til í að vera fara eitthvað út núna.

En hvað segið þið hinar, hvernig væri nú að við myndum kannski reyna að kíkja á Sólon eða eitthvað svona kósý eitthvert kvöldið, ég kemst nánast öll kvöld nema mánudaga því þá er Siggi á æfingu og ég veit að Bína er upptekin þri. því þá eru hún og Logi að æfa brúðarvalsinn ;0). En ég er til í allt, jafnvel bara bíóferð. Hvað með ykkur???

7.2.06 skrifaði Linda

5 Ummæli:

  • Klukkan 11:48 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Ég er rosa mikið til í að gera eitthvað sniðugt... við vorum nú að tala um heima hjá Begz að reyna að kíkjá í bíó í vikunni... ég er eiginlega bara laus annað kvöld, verð á kvöldvöktum í vettvangsnáminu (og tek auðvitað líka mínar kvöldvaktir í Steinahlíð) svo næstu vikur verð ég mikið bizý. það koma reyndar alveg kvöld inn á milli þar sem ég á frí á báðum stöðum :)
    Endilega verðum í bandi með eitthvað snelle, fullt af myndum í bíó núna...

     
  • Klukkan 11:50 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Annað kvöld hentar mér mjög vel, er alveg til í að skella mér í bíó eða kaffihús, eða bara bæði ;) hvað með ykkur hinar??

     
  • Klukkan 1:31 e.h., sagði Blogger Bína…

    ég er game

     
  • Klukkan 1:45 e.h., sagði Blogger Bína…

    hvað segiði?
    ég er til í allt- borða og svo í bíó, bíó snemma og svo á kaffihús... eða bara kaffihús og bíó einhvern tímann seinna.... eða öfugt. meikar þetta sens?? hehe

     
  • Klukkan 1:54 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Eigum við ekki að fara a.m.k. í bíó (langar svo að sjá e-ð af öllum þessum myndum sem eru í bíó núna ;) hef ekki farið endalaust lengi)... væri reyndar ógó mikið til í að borða e-ð gott líka :)

     

Skrifa ummæli

<< Til baka