Bónerfréttir
10.2.06
Það er náttúrlega nauðsynlegt að færa lestrarbækurnar til nútímans svo börnin finni sig í þeim:
Bekkjarafmælið
Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða því hún var að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann. Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim. Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf og Hreinn Bolli. Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum. Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni. Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar - "#%=$&/(=!z#$!/!=!Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín?Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni. Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum. Hún var orðin alltof sein í afmælið.
Persónulega finnst mér ömurlegt að Guðmundi Fífli hafi ekki verið boðið í þetta afmæli
10.2.06 skrifaði Linda
3 Ummæli:
Klukkan 11:23 f.h., sagði
Bína…
hahahaha þetta fer sko uppá kennarastofuna!!
Klukkan 8:57 e.h., sagði
Nafnlaus…
whahahahahaha.... jiiiminnn eini... eg sver tad ad svona er tetta er ordid bull!!!! anyways...er BRJAAAAALADUR ponkari i paryi hja vinkonu minni og erum ad fara a ball i skolanum:) Loveeee you all guys!!!!!!!
Klukkan 9:47 e.h., sagði
Nafnlaus…
hahaha... bara fyndið :)
Held líka að þetta sé að verða svona, veslings börnin skírð undarlegustu nöfnum
Skrifa ummæli
<< Til baka