Bónerfréttir
13.2.06
Er búin að hanga eitthvað svo mikið á netinu í dag... ákvað að láta eitthvað eftir mig eftir allt þetta hangs.
Ich bin bissý krissý þessa dagana á dansnámskeiðum! Byrjaði í dag á magadansnámskeiði. Massa gaman og mikið hlegið. Búin að vera að dilla skvapinu í allt kvöld hehe. Get ekki labbað eðlilega- dilla bossanum og horfi í spegilinn ALLTAF þegar ég fer framhjá honum. Þarf eiginlega að bæta á mig eins og 3 kílóum svo að þetta verði almennilegt- hélt ég myndi nú ALDREI segja ÞETTA! En það er bara staðreynd að því meira skvap, því flottara. Svo gerir maður alveg ráð fyrir því að vera rúmliggjandi af harðsperrum í fyrramálið, er búin að vera að hrista fullt af nýfundnum vöðvum....- en það má ekki því það er dansæfing annað kvöld líka! Í öllu þessu eggjastokka-hristeríi á maður svo víst að taka tvöfaldan skammt af pillunni- svo margar sem verða óléttar af magadansi... hehehehe better be safe than.... jæja, ekki kannski sorry- en þið vitið. Kannski er líka því um að kenna að djellurnar eru að æfa sig heima þegar kallinn sér... hmmmm....
Jæja, hvað segiði með laugardaginn?? á ekki aðeins að lyfta sér upp? Ég er reyndar að fara í "pálínuboð" á föstudaginn- hljómar frekar nett og settlegt en er það ekki, verður hevy djamm ábyggilega á þessum kennurum ;o) En ég er alveg til í meira á laugardaginn (segi ég núna... best að lofa engu strax). Langar alveg ógó mikið að sletta úr klaufunum með ykkur gellum. Er búin að vera tveggja barna móðir síðustu tvær helgar og - verð að segja, svoldið erfitt! Nei nei bara örrvísi, maður er bara vanur að hafa einn krakka í kringum sig....
Jæja, já- er farin í bólið að slaka á hristingnum ;o)
13.2.06 skrifaði Bína
6 Ummæli:
Klukkan 3:03 e.h., sagði
Nafnlaus…
hæbb
ég er alveg til í júróvisjón hitting, var reyndar búin að lofa Viggz að bralla e-ð saman þá svo kannski tek ég hana bara með mér ef við hittumst... getum við ekki pantað okkur mat og e-ð svona kósí, kannski fengið okkur smá öl... eða hvað??? Væri alveg til í Nings eða e-ð gotterí ;)
Klukkan 2:33 e.h., sagði
Bína…
já ég er til í allt líka;o)
Karlarnir sem verða heima hjá mér ætla að grilla læri og e-ð... hef hugsað mér að vera ekki fyrir í þeim málum
Klukkan 2:34 e.h., sagði
Bína…
já... það kemur magadanskennari hingað í lækjarskola að kenna okkur kellunum- metþátttaka! En það eru bara 4 skipti og ég væri sko alveg til í að halda áfram eftir það!
Klukkan 7:56 e.h., sagði
Nafnlaus…
SHAKE SHAKE SHAKE IT BABY;) Vííhaa-hljómar eins og MIIIIIIKIÐ fjör!! Mikið asssss.... væri nú gaman að komast í smá júrógeim um helgina.. arrrggg- ég verð víst heima að lesa um RÓTFYLLINGAR á skrilljón! TREYSTI á að þið skálið fyrir mér;) Have fuuuun babies!! Knúúúúz
Klukkan 10:31 e.h., sagði
Nafnlaus…
ok, hvað segja hinar kerlurnar?? Anna? Linda? Eruð þið geim or what?
Klukkan 11:47 f.h., sagði
Nafnlaus…
Ég get boðið ykkur heim til mín, þar sem Siggi er að fara að spila í brúðkaupi kemst ég ekkert út, og nenni eiginlega ekki að vera redda pössun þannig ef þið viljið eru þið velkomnar heim til mín. Látið mig bara vita
Skrifa ummæli
<< Til baka