Bónerfréttir
7.1.06  
Jæja girlý girls

Þá er loksins komið að því að við ætlum að halda smá innflutningspartý, svolítið sein í því ennnnnn..... betra er seint en aldrei. Allavega þá verður partýið föstudaginn 13.... og auðvitað er skyldumæting hjá öllum og svo verður auðvitað boðið upp á margarita og vonandi hægt að mixa einhverja fleiri skemmtilega kokteila úr öllu þessu víni sem við eigum. Svo vorum við á að spá í að hafa eitthvað þema, kannski allir að mæta sem einhver frægur. Ef þið hafið góðar hugmyndir endilega látið mig vita.

Annar er bara allt mjög rólegt að frétta af okkur, bara að reyna koma okkur í hina dagsdaglegu rútinu, sem gengur frekar erfiðlega eftir svo langt og afslappandi jólafrí á Eskifirði. Þetta er eiginlega hættulega notalegt að fara svona austur því manni langar ekkert að fara heim aftur.

Svo litli strúfurinn loksins að byrja á leikskóla, átti að byrja í aðlögun á mið. og fórum við saman að skoða þá en svo varð maður bara veikur þannig maður verður að byrja á byrjun á mán. En það á vonandi eftir að ganga vel hjá mömmustráknum.

jæja stelpur koma ykkur og köllunum í gírinn og mæta galvösk á fös í parýið

7.1.06 skrifaði Linda

20 Ummæli:

  • Klukkan 1:58 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    I'll be there... EKKI SPURNING!!! Hlakka rosa mikið til- verður eflaust svaaaaðalegt fjör:) Þarf bara að leggja hausinn í bleyti uppá búning- ÓTRÚLEGA SKEMMTILEG HUGMYND:) Can't wait 2 see ya all! Knuuuuz HB

     
  • Klukkan 10:15 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Jamm ég mæti líka... er óvænt í fríi á fös og lau jeiiii svo ég þarf ekki að redda neinum vöktum ;)
    Hlakka til, eins gott að finna e-ð til að mæta í... huuummmm... :D

     
  • Klukkan 8:36 e.h., sagði Blogger Bína…

    hæbb.. ég er alltaf að reyna að commenta hérna- það gengur aldrei!
    það sem ég er að reyna að aula út úr mér: eru allir að komast í gírinn? búin að redda búning og svoleiðis?
    bara að tékka... svo maður verði ekki "overdressed". held reyndar að helga sé með snilldar karaktera...

     
  • Klukkan 12:27 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    hæ bína ;)
    Búninga.... jaaaaa... ég veitiggi sko, kemur í ljós á morgun... annars mæti ég bara sem Matilda Sigurdar... hún er reyndar ekkert slor sko :P

    P.S. hverjir eru allir þessir snilldar karakterar sem Helga er með... share share!!!!

     
  • Klukkan 10:32 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Whahahahaa.... já HVERJIR eru þessir SNILLDAR karakterar maður?? Ég er farin að halda að þið séuð að gera at í mér þannig að við mætum eins og einhverjir hálfvitar..hehehehe... jiminn- er svo ÞVÍLÍKT að bræða úr mér með að hugsa þetta út að það er ekki NORM!! En allavega- ég VONA að þetta sé ON og að ALLIR mæti sem einhver frægur...kommon- upp með stemmarann;) hehe... hlakka svooo til- málum bæinn BLEIKANN!!! Knúúúúúz HB

     
  • Klukkan 1:51 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Hahaha... at já... það væri bara fyndið, svona eins og í leagally blond (var að horfa á hana) þegar hún mætti í kanínu (playboy) átfittinu og enginn annar var í búning... hahaha... það var bara fyndið... var ekki svipað atriði í bridget jones?? Nei helga mín við myndum nú ekki fara svona illa með þig elskan ;)
    En ég held að smáralind sé málið núna - að finna e-ð til að sjóða saman einhvern sjóðheitan búning... er alveg að verða kúkú á þessu hehe...

     
  • Klukkan 2:55 e.h., sagði Blogger Bína…

    við logi verðum í snilldarbúning- promise!hehehe

     
  • Klukkan 1:27 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Okey.. skiluru..var þetta ekki bara mesta snilldar party ever skiluru!! Djöfull var ógisslega gaman skiluru að hitta allt þetta fræga fólk þúst.. en audda enginn svona frægur eins og ég skiluru.. en samt ógisslega gaman! Takk fyrir fokking síðast anyways og bara ROCK ON!! Ps. þurfum við ekki eins og svona amk. 1 saumó/hitting í vikunni þúst??

     
  • Klukkan 4:18 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Hahahaha... það var bara fyndið, "ég er ekki ólétt sko" hahaha... og snilldar partý. Nonni að meika það sem súperman, tvær stelpur sem komu á barinn voru alveg "æææææ sjáðu þennan, sætt" haha og bentu á superman, mér fannst það alveg ógisslega fyndið... skilurru... Var að hlaða inn myndunum, aðeins rúm 70 stykki af okkur með sömu svipbrigðin, alveg flottastar sko :D
    Og jú hitting í vikunni, ég er laus þriðjudag, miðvikudag (eftir kl 21) og fimmtudag....

     
  • Klukkan 7:19 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Já takk fyrir mig og komuna, skemmti mér ekkert smá vel mar, drakk reyndar aðeins of mikið eða allavega fór þetta ekki vel í mig, var reyndar ekkert búin að borða allan daginn og illa sofin þannig það hafði kannski einhver áhrif. Siggi fékk víst svaka athygli út á búningin líka. Ég er bara fúlust yfir því að hafa ekki komist með ykkur að tjútta í bænum, er orðinn algjör hænuhaus þegar kemur að drykkju. En ég er alveg til í hitting í vikunni, væri voða gaman að fara á sólon eða vegamót og fá sér kannksi pínu að borða með, en ég er laus þri, fim og fös, og eftir kl.10 á mán og mið.

     
  • Klukkan 1:48 e.h., sagði Blogger Bína…

    Hahahaha já það voru ALLIR Á RASSGATINU. Ég er sko til í hitting í vikunni... við vorum reyndar búnar að ákveða hjá mér á miðvikudaginn... er það on eða?.. let me know

     
  • Klukkan 8:11 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Wahahaha... alveg snilld- sé alveg Mrs.Jolie fyrir mér ólétt í bænum sötrandi bjór! æjjj þetta var SVOOO mikil snilld- VERÐUR sko að endurtaka síðar...verður þó vonandi ekki eins erfitt að ákveða búning maður- úff!! Enýveis- var að spá hvort hittingur væri jafnvel mögulegur á þriðjudagskvöld??? Minns er til í allt- væri samt jafnvel skemmtilegra að hittast í heimahúsi og tjatta...eða hvað?? Hvað segið þið dúllurnar mínar? Luuuuuv HB

     
  • Klukkan 10:18 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Jammm gengur upp fyrir mig að hittast á þriðjudaginn... Bína er ekki bara hægt að flytja hittingin hjá þér frá miðvikud. til þriðjudagsins???
    Hlakka til...

     
  • Klukkan 1:38 e.h., sagði Blogger Bína…

    heheheh þetta er ekki að ganga upp... ég kemst ekki á þriðjudaginn

     
  • Klukkan 12:08 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    AAARRRGGG og GAAARGGG... eruð þið ekki að grínast maður- við VERÐUM að finna tíma!!!!! MÖST MÖST MÖSSSST!! Var að vonast til að við gætum á morgun... og ég gæti jafnvel kíkt á tennur á mið.kvöld- en ég get líka haft það öfugt ef þið sem viljið láta kíkja á tönnslur komist þá annað kvöld???? :/ jæææksss- þetta VERÐUR allt að fitta inn í STÍFT prógramm;) Voooona að þetta náist!! Begz og Linda- endilega látið mig vita hvort þið gætuð þá kannski eftir 18 á morgun??!! Þetta er btw. orðin mesta langlokukomment dauðans- þannig að ég held að ég segi bara "HLAKKA TIL AÐ SJÁ YKKUR SOOOOOON"!!!!! Kiss kisss og knúúúz yours HB

     
  • Klukkan 8:33 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Algert langloku komment.... og ekki hægt að finna neinn lausan tíma :(
    Ef þið dettið niður á e-n tíma, t.d. á morgun, látið mig þá vita símleiðis... kemst ekkert í tölvu á morgun til að kíkja hér inn ;)
    Endilega að þjappa alla dagskrá svo við getum aðeins knúsað Helguna áður en hún hverfur af landi brott (enn eina ferðina :( )
    ...Well best að fara að grafa kaggann úr skaflinum, eða búa til snjókarl (er að reyna að fíla allan þennan snjó sko, tók aðeins 1 klst og 35 mín. að komast í skúlen í morgun jeiii) hehe...

     
  • Klukkan 8:41 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Rakst á þetta blogg http://bebbaoghjolli.blogspot.com/
    Voða sorglegt eitthvað... það sem er lagt á litla kroppa :/

     
  • Klukkan 9:30 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Ekkert smá sorglegt!! Ég las heilan helling af þessu í gærkveldi og grét úr mér augun. Ótrúlegt hvað lagt er á eina fjölskyldu, minnir mann á hvað maður er óendanlega heppinn að eiga tvö heilbrigð börn.

     
  • Klukkan 4:12 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Jæja dúllur!! ARE WE ON 2NIGHT??? Ég er allavega búin að segja Bínu að ég MÆTI til hennar í kvöld!!! Voooooooooooooooooooooooooona að þið hinar getið það líka!!!! Verðððð að fá að knúsa ykkur áður en ég held til Baunalands. Hlakka rosa mikið til að sjá ykkur og vonandi sjá FULLLLT af myndum frá tjúttinu ÓGURLEGA;) Hugz & kissez HB

     
  • Klukkan 4:43 e.h., sagði Blogger Bína…

    Já endilega komiði ef þið hafið tíma... strumpurinn er reyndar veikur en það er alveg í lagi að fá nokkrar gellur hingað- svo verður loginn líka heima til að sinna honum.
    eigum við ekki bara að segja svona 8- hálf 9?

     

Skrifa ummæli

<< Til baka