Bónerfréttir
7.12.05  
Mikið assskoti var maður pirraður í vinnunni í dag. Fékk engan hádegismat af því að matráðurinn okkar var veik. Mér fannst alveg í hádeginu að manneskjan hefði átt að mæta veik í vinnuna! En hún gerði það víst ekki þó 70 manns treystu á hana, þannig að minns labbaði heim ÓGÓ svangur klukkan 3. Kom heim, kveikti á sjónvarpinu og fékk með ristað brauð og te... seðja það sárasta áður en strumpurinn var sóttur... kemur ekki "Hjálpum þeim" myndbandið...þetta nýja. Úff hvað ég fékk mikið samviskubit! Gat í alvöru ekki borðað bita.... Annars finnst mér þessi útgáfa á laginu bara ekki góð... vil frekar hlusta á þetta gamla. Kannski þarf maður bara að venjast þessu en þetta gamla er betra ;o)
Og talandi um GÓÐ LÖG! Eruð þið búnar að heyra Jólalag Kóngulóarbandsins??? Linda er auðvitað búin að heyra það og svo spilaði ég það fyrir Begs og Önnu hérna um kvöldið. Þær voru alveg að fíla það- enda er það þrusu gott. Tékkið á síðunni þeirra félaga. Þar er líka hægt að hlusta á lagið og skoða myndir af aðalgrúppíunum og alles;o)
Hlakka annars bara GEÐVEIKT til að tjútta með ykkur á lau. Er reyndar að fara líka á tjútt á fös. þar sem er rautt þema... á einhver eitthvað rautt og sætt til að lána?? hehe
nnigadragual á tsmuájs....

7.12.05 skrifaði Bína

9 Ummæli:

  • Klukkan 5:45 e.h., sagði Blogger Bína…

  • Klukkan 11:39 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Haha... já þessi mynd er bara fyndin :D Fékk hana einmitt á e-maili um daginn og dó næstum úr hlátri... hehe...Súrt :)

     
  • Klukkan 1:57 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    me again... langaði bara að segja að ég er nú bara nokkuð sátt við nýju útgáfu hjálpum þeim lagsins... finnst það hafa heppnast vel miðað við svona endurgerðir í gegnum tíðina... :) Var sko að heyra það almennilega núna ;)

     
  • Klukkan 10:00 f.h., sagði Blogger Bína…

    já... ég er eitthvað lengi að venjast þessu ;o) er að hlusta á það núna- finnst í fyrsta lagi Nylon alltof væmnar í sínu versi og Heiða idol syngur þetta bara ekki rétt! hehehe venst ábyggilega.
    Takk annars fyrir síðast babes.. ég skemmti mér konunglega. Hlakka til að hitta ykkur í pakkaleik

     
  • Klukkan 11:10 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Takk fyrir síðast, sorry hvað ég var boring... vildi bara endilega hafa ykkur með í bæinn ;) Fóruð þið á Áttuna?
    Já er alveg sammála með Nylon, eru heldur slappar og kraftlausar þarna... En hvernig er það, eru ekki tónleikar á fimmtudag??

     
  • Klukkan 1:25 e.h., sagði Blogger Bína…

    boring?? ekki man ég eftir því.. Nei, fór ekki á áttuna- strákarnir fóru ekki fyrr en rúmlega 2 þangað.
    Jú jólatónleikar á fim. ég hlakka geðveikt til! og að eta á undan ehagi? Eldsmiðjan kemur sterk inn, vegamót líka, madonna og bara allt (nema mcdonalds)hehe

     
  • Klukkan 1:27 e.h., sagði Blogger Bína…

    hey- gleymdi að segja: allir hlusta á rás 2 (úff) Kóngulærnar eru í 6 laga úrslitum í jólalagakeppni!! Hin lögin sökka... needless to say ;o)
    Leyfðu mér að eiga með þér ljúfa jólastund....lalalala

     
  • Klukkan 1:29 e.h., sagði Blogger Bína…

    díses- gleymdi: hlustendur dæma! ábyggilega hægt að kjósa á rúv.is eða eitthvað...

     
  • Klukkan 1:44 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Haha... man bara eftir mér e-ð röflandi... er það svo sem alltaf svo.... hehe...
    Hlakka líka svooooo til að fara á tónleikana, líst vel á Vegamót... eða Eldsmiðjuna... er reyndar alveg til í e-ð annað en pizzu en þið megið ráða (má ekki vera að því hehe). Við Ásta Pála, bekkjarsys, erum að leggja lokahönd á verkefnin okkar... fjúfffff... get ekki beðið eftir að skila þeim... Þá tekur við jólagjafakaup, jólaþrif, jólaklipping, meiri vinna, finna jólabuxur, og svo pakka inn... ómæ... heglingu eftir og jólin í næstu vikur
    Hey þetta comment er orðið blogg...hehe...
    Hlakka til að sjá ykkur á fim, borða góðan mat og hlusta á ljúfa tóna :D
    Ætla að tékka á rás 2...
    Síjú EmmEss

     

Skrifa ummæli

<< Til baka