Bónerfréttir
23.11.05
Til hamingju með afmælið elsku Anna :o*
Verst að þú ert bara uppí skóla að læra á afmælisdaginn en við bætum úr því er það ekki?? En-shit-maður ætti þó ekki að vera að lofa neinu......úff
Annars er maður hálfgerð grasekkja þessa dagana. Kóngulóarbandið er á fullu. Þeim finnst ansi stór á sér tippin núna.... Eru að fara að taka þátt í einhverri keppni annað kvöld (sem ég ætla að mæta á ef einhver vill gefa mér kompaní- linda mætir líka ef hún fær pössun) sem þarf sko að ÆFA fyrir og svo eru þeir búnir að vera í stúdíói að taka upp frekar kúl jólalag, þó ég segi sjálf frá. hehehe svona öðruvísi skulum við segja.... Nei án gríns þá fíla ég það bara þrusu vel. Alveg hægt að dilla sér við það- hægri vinstri hægri vinstri. Það á að koma því í spilun og þá er bara að vera duglegur að hringja á útvarpsstöðvarnar og panta lagið! Það verður samt ábyggilega ekki spilað á létt... sé það ekki alveg fyrir mér....það heitir "Helvítis jólalagið" þessa stundina en heitir vonandi eitthvað annað eftir æfinguna í kvöld.
Jæja grrrls... verðum bara í bandi.... þið vitið af spileríinu á morgun- mæli með því að taka breik frá öllu skólaveseni eina litla kvöldstund;o);o)
over and out...tssssshh
23.11.05 skrifaði Bína
3 Ummæli:
Klukkan 1:11 e.h., sagði
Nafnlaus…
Jamm... fleiri ammælisknús frá mér til Annie ;) Maður fær aldrei nóg af þeim.... hehe... Skólavesenið hefur yfirhöndina í kvöld eins og flest kvöld þessa dagana, hef varla tíma til að vinna :( Er alveg að fá nóg af þessu sko... eeeen þarf að halda áfram, a.m.k. til 14. des.... búhú... er engan veginn að nenna þessu. Langar að fara að þrífa skápa og taka til í geymslum eða eitthvað, bara vegna þess að ég ÞARF að vera að læra :/
Eeeen þetta tekur enda, gott að sjá fyrir endan á þess, er farin að sjá fyrir mér útskrift í vor...jeiiiii
Klukkan 7:04 e.h., sagði
Nafnlaus…
Yes..Annie mín- aftur til lukku frá mér...vooona nú að þú hafir nú getað gert EITTHVAÐ smá skemmtilegt á afm.daginn! Úfff..þetta skólavesen er greinilega að kollríða öllum þarna heima :/ jæææks!!! Gangi ykkur SUPER DUPER vel snúllurassgötin mín. Góða skemmtun í kvöld esskurnar;) Kizzez and knúzez from Helgie :)
Klukkan 9:58 e.h., sagði
Bína…
YEAH! kóngulærnar rúla!!!!
Þeir komust áfram í keppninni tippalingarnir!! Atkvæði okkar Lindu hefur skipt sköpum hehehe.... við blikkuðum líka dómnefndina;o)
Skrifa ummæli
<< Til baka