Bónerfréttir
2.10.05
Sælar stúlkur.
Mikið svakalega var gaman að sjá helminginn af ykkur í afmælinu hans Þorbergs í gær! Þurfum endilega að skipuleggja okkur betur með "saumó".
Maður er annars bara að taka því rólega og njóta þess að tengdó er hér til að sjá um strumpinn. Hann sér engan annan en hana og við erum bara eins og í fríi... voða þægilegt að vera ekki í stressi á morgnana með að koma honum á fætur og út. En sælan er bráðum búin- Helgamma fer heim og allt fer í rétta farið (sem er þægilegt líka).
Á morgun er foreldradagur hjá mér og liggur við að ég sakni krakkanna minna! Væri frekar til í að kenna þeim heldur en að vera í viðtölum allan daginn. Reyndar hef ég ekkert nema gott að segja þannig að þetta verður bara stuð.
Svo er bara skemmtilegur tími framundan: Leikhúsferð með ykkur (vonandi), Baunarnir eru að koma, reunionið mikla og svo ætlum við að reyna að fara austur í vetrarfríinu mínu í lok mánaðar. Svo átti að fara í sumarbústað með liðinu okkar (Loga megin) einhvern tímann í október... en maður fer að verða uppiskroppa með helgar. Geri ráð fyrir að því verði frestað fram í nóvember og svo áður en maður veit af er bara kominn desember!
Jæja, gellur. Ef það er ég sem á að bjóða heim næst sparkið þá í mig- ég man þetta ekki.... man ekki einu sinni hvort búið var að plana þetta.
Djí- svo gleymi ég næstum aðalástæðunni fyrir því að ég fór að skrifa hérna: Fór í smáralindina í dag og keypti mér ecco inniskó fyrir afmælispeninginn frá ykkur- þannig að nú geng ég á skýi í vinnunni:) Thank you;o)
2.10.05 skrifaði Bína
1 Ummæli:
Klukkan 11:37 e.h., sagði
Nafnlaus…
Hæbbz!!
Jamm hefði alveg verið til í að hitta ykkur í ammælinu hans Þorbergs í gær... en var að jobba (no news there ;)) Var meira en lítið til í kökur og góðgæti...
Sá myndir á síðunni þeirra bræðra, og video, Linda dugleg!!
Verði þér að því Bíns míns, gangtu vel og lengi ;)
Well hlakka til að fara í leikhús, og á reunion, held við þurfum að fara að hittast bráðlega...
Knúúúúzzzz -MS-
Skrifa ummæli
<< Til baka