Bónerfréttir
27.9.05  
Hvað gerir mamma þín?
Í framhaldi af pistlinum hennar Önnu kemur þessi um móðurhlutverkið.... :D (Lýsing barna)

-Börnin vöktust og klæddust,
-grauturinn eldaðist og átst,
-það bjóst um rúmin og sópaðist,
-þvotturinn þvoðist og hengdist upp,
-það gerðist við og stoppaðist í,
-saumaðist og prjónaðist,
-tertan bakaðist og borðaðist,
-það vaskaðist upp og gekkst frá,
-börnin hugguðust og hjúfruðust,
-það breiddist yfir þau og kysstust góða nótt.
þegar börnin voru spurð: hvað gerir mamma þín?
urðu þau undirleit og svöruðu lágt: ekkert, hún er bara heima.

27.9.05 skrifaði Matthildur

1 Ummæli:

  • Klukkan 1:17 e.h., sagði Blogger Bína…

    já ég féll alveg fyrir þessum sem segir að maður eigi eftir að græða peninga... þetta virkar sko alveg!;o)

     

Skrifa ummæli

<< Til baka