Bónerfréttir
25.8.05  
Heyrðu! Bara allt að gerast.... Það er alveg kominn tími á minn hérna inni líka. Núna er ég í eyðu- gæti alveg verið að finna mér fullt að gera- en ákvað að kíkja hingað inn og þá bara varð ég að tjá mig;o)
Það er búið að ganga á ýmsu síðustu dagana... Bjartur búinn að láta reka sig frá einni dagmömmu og svona:o/ Hún var nú heldur ekki alveg í lagi-segja allir sem heyra söguna. Þau voru bara ekki að ná saman- við skulum bara segja það...En hann er nú kominn til snillingsins hennar Hildar og þar er Þorbergur og fleiri skemmtilegir strákar og minns er bara glaður. Fjúh! sem betur fer. Svo er bara ÆÐI í vinnunni!! Ég er með yndisleg börn. Það er svo gaman að fá svona vel upp alin börn til sín og vekur alveg traust mitt á nútíma foreldrum. Spillir ekki heldur að þau eru bara 15 í bekk og ég er sko alveg í skýjunum og hlakka til á kvöldin að mæta í skólann og hitta dúllurnar mínar. Haldiði að það sé nú- mætti halda að ég væri á gleðipillum þessa dagana.... Greinilega alveg kominn tími á mína að fara að vinna;o)
Anyway... held að Loginn sé búinn að setja inn myndir af OKKUR (- ekki Bjarti)á myndasíðuna SÍNA (-ekki Bjarts)Þannig að það er bara allt að gerast. Alveg kominn tími til að sýna sig aðeins fyrir framan myndavélina og gjóa augunum frá frumburðinum=pretty much: getting a live;o)hehehehe En bara smá..

25.8.05 skrifaði Bína

1 Ummæli:

  • Klukkan 3:13 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Neeeeeiiii neeeiii!!!
    Detta af mér allar dauðar...hehehe...Bara allt að verða vitlaust.
    Bjartur töffari, frétti hjá Lindu að hann hefði látið reka sig..haha.. gott hjá honum, maður lætur ekki bjóða sér hvað sem er sko, jafnvel þó maður sé bara eins árs gutti ;)
    Frábært að vinnan sé alveg að gera sig, vona að skólinn minn verði svona æðislegur þegar ég hitti alla veluppöldu (??? er þetta orð hehe) bekkjarfélagana mína, sem reyndar eru um 30 stk... hehe.. verður bara gaman.
    Ok varð bara að lýsa yfir ánægju minni með vinkonur mínar í dag, vonandi er þetta það sem koma skal ;)
    Ætla að fara ath hvort Logi hafi verið duglegur

     

Skrifa ummæli

<< Til baka