Bónerfréttir
14.7.05
Loksins lét sólin sjá sig! Reyndar orðið alltof skýjað núna en það er allavega ekki rigning og dimmt. Er að spá í að drífa mig bara út með strumpinn... verst að hann er svo kvefaður að það er alveg óþekkjanleg í honum röddin (ógó sætt). En það er svo gott veður að það gerir ekkert til...
Það er annars bara alles gut að frétta- svona síðan ég hitti ykkur síðast (eða meirihlutann af bónerunum). Veit ekki hvað ég er að rembast við að skrifa eitthvað hérna inn. Get annars sagt ykkur að ég hlakka geðveikt til helgarinnar- fyrsta helgin í laaaaangan tíma sem við erum EKKERT að gera og það verður sko slappað af!
14.7.05 skrifaði Bína
4 Ummæli:
Klukkan 9:33 f.h., sagði
Nafnlaus…
Hæ krúsí... Djöö að ég komst ekki með í Nauthólsvík maður- hvernig var?? Langaði ógó mikið- var bara á brjáluðum þeytingi allan daginn:s Er svo að fara að taka mig til og pakka- leggjum af stað vestur í brúðkaupið í dag og gistum einhversstaðar á leiðinni...hehe- finnum vonandi út úr því;) Eigið FRÁBÆRA helgi krúsirnar mínar- sjáumst vonandi soon. Kiss kiss
Klukkan 9:35 f.h., sagði
Nafnlaus…
Kossar og knúz til Bjarts... ég er einmitt líka búin að vera hálf-raddlaus og bragðslaus í vikunni. Arrrg..ekki gaman. Vona að hann hristi þetta af sér fljótt.
Klukkan 2:39 e.h., sagði
Bína…
Það var alveg svaka næs á "stöndinni". Veðrið var alveg frááábært. Meiriháttar gaman að setja litlu tásurnar í sandinn og moka og svoleiðis- meira að segja að vaða í ylvolga tilbúna sjónum. Vona að maður komist einhvern tímann aftur í sumar.... Fékk alveg svona spánarfíling sko.. en shit hvað ég myndi ekki nenna með svona lítið kríli á sólarströnd- maður slappar ekkert af og verður að vera á vaktinni - það er nefnilega bannað að smakka á sandkökunum;o)
Annars er strumpur með barkabólgu... ekki huggulegt! Linda kannast við geltið og óhljóðin... Vona líka að þetta hristist fljótt af svona ljósálfastrumpum...
Klukkan 9:46 e.h., sagði
Nafnlaus…
Æiii... litli karlinn, ekki gott... greynilega eitthvað að ganga, er líka búin að vera stífluð á báðum og bragðskynslaus en ekkert hæsi þó HJÚKKK... hehe... hristir þetta af sér fljótlega vonandi.
Skrifa ummæli
<< Til baka