Bónerfréttir
7.6.05  

JAHÚ!!!Sumarfríið byrjað.... var að skríða heim úr vinnunni og er því komin í sumarfrí.... bara geggjað :)

Veit reyndar ekkert hvernig ég eyði því, er nokkuð viss um að ég kíki upp í bústað til Bíns og familí í svona eins og eina nótt, ef ég má....hehe.... Svo er ég að fara í brúðkaup á 17. júní, hlakka til þess.... Annars er bara málið að liggja í sólbaði, fara á línuskauta, og kíkja í bæinn og bara að tjilla....

Svo á Eyrún tvíburamamman okkar afmæli í dag, Til hamingju með afmælið elsku Eyrún. Vona að þið fjölskyldan hafið átt góðan dag saman í tilefni dagsins.... og til hamingju með karlinn í gær :)

Jæja elskurnar mínar, ef ykkur vantar félgasskap næstu vikurnar þá er ég mögulega á lausu :) Heyri í ykkur þegar þið komið í bæinn eða til landsins (Bónerfélagar virðast vera á faraldsfæti þessa dagana :)) *smack* -MS- Nú má sólin fara að láta sjá sig :p


7.6.05 skrifaði Matthildur

6 Ummæli:

  • Klukkan 8:55 e.h., sagði Blogger Matthildur…

    Merkilegt.... Hvernig fer ég alltaf að þessu, kemur alltaf langt bil og annað letur hjá mér en ykkur???? :/ skil þetta ekki... sjáið þið það líka?

     
  • Klukkan 9:02 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Hehe... jáá þetta er stór- furðulegt... þú ert bara svona SPES eeelskan;) verður að fá þitt speis hérna inni sko;) Heyrðu annars- veist jú að ég verð eflaust e-ð laus til að bralla einhverja helv... vitleysu með þér esskan þegar ég kem;) hehe- hlakka til;)

     
  • Klukkan 11:24 f.h., sagði Blogger Bína…

    minns er til í vitleysu líka! Við komum í bæinn þegar veðrið hérna verður leiðinlegt;o) Og- allir velkomnir í bústað 17-24!!! partý on!

     
  • Klukkan 8:35 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Hehe já speis, hef alltaf þurft mitt speis ;) Svo að bústaðurinn seinkaði eða hvað... hélt einhverra hluta vegna að þið fengjuð hann frá 10. til 17. júní, sillí mí eða hvað??

    Hlakka til að sjá ykkur skvísurnar ;)

     
  • Klukkan 5:59 e.h., sagði Blogger Bína…

    jú.. átti fyrst að vera 10-17. en við vildum frekar viku seinna því við erum fyrir austan;o) þannig að ekki svo sillí jú.
    Veðrið loksins orðið gott... eða: sólin loksins komin! jibbííí! alveg spánarveður í dag og pant fá svoleiðis í bústað

     
  • Klukkan 8:01 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Gaman að það skuli vera Spánarveður einhvers staðar á þessu skeri.... veit að ég bað um rigningu en.... Reyndar ekkert búið að rigna í dag held ég, bara skýjað og hitastigið mætti vera hærra... En hver er að kvarta (btw er í SUMARFRÍI)?? :P

     

Skrifa ummæli

<< Til baka