| Árið 2010 í ríki gagnagrunnanna SÍMASTÚLKA: Pizza plúúúús! Viðskiptavinur: Halló, ég ætla að panta pizzu hjá ykkur... SÍMASTÚLKA: Sjálfsagt, ég þarf að fá kennitöluna þína. VIÐSKIPTAVINUR: Kennitöluna, já hún er 180869-4859. SÍMASTÚLKA: Já, Jón Jónsson, heimilisfang Fálkagata 17, símanúmer 5809957. Þú vinnur í herbergi nr. 23 hjá Landsvirkjun og GSM númerið þitt er 879-4138. Úr hvaða síma hringirðu? VIÐSKIPTAVINUR: Ha, ég? Heimasímanum. Hvar náðirðu í allar þessar upplýsingar? SÍMASTÚLKA: Við erum tengd við netið. VIÐSKIPTAVINUR: (andvarpar) Já, ég ætla að fá tvær lúxuspizzur með kjötáleggi... SÍMASTÚLKA: Ég held þú ættir að sleppa því, Jón. VIÐSKIPTAVINUR: Hvað meinarðu? SÍMASTÚLKA: Jón, í sjúkraskýrslunni þinni stendur að þú hafir mjög háan blóðþrýsting og allof hátt kólesteról. Líftryggingafélagið þitt leyfir þér ekki að borða svona óhollan mat. VIÐSKIPTAVINUR: Hverju mælirðu þá með? SÍMASTÚLKA: Þú ættir að prófa fituskertu sojabaunapizzuna okkar með jógúrtsósunni. Ég er viss um að þér þykir hún góð. VIÐSKIPTAVINUR: Hvernig dettur þér í hug að ég mundi vilja eitthvað svoleiðis? SÍMASTÚLKA: Nú, þú tókst "Gæðauppskriftir með sojabaunum" á bókasafninu í síðustu viku. Þessvegna stakk ég upp á þessu. VIÐSKIPTAVINUR: Ókey, ókey. Sendu mér tvær í fjölskyldustærð. Hvað kostar þetta svo? SÍMASTÚLKA: Það ætti að nægja þér, konunni og börnunum fjórum. Kostnaðurinn er 4.589 krónur. VIÐSKIPTAVINUR: Ég ætlað að borga með kreditkortinu. Númerið er... SÍMASTÚLKA: (grípur fram í) Því miður, en þú verður að borga út í hönd. Þú ert kominn yfir á kortinu. VIÐSKIPTAVINUR: Ég hleyp þá bara í næsta hraðbanka með debetkortið og tek út pening áður en bílstjórinn ykkur kemur. SÍMASTÚLKA: Það gengur ekki heldur. Þú er búinn með yfirdráttinn á tékkareikningnum. VIÐSKIPTAVINUR: Jæja, jæja, sendu bara pizzurnar og ég hef peningana tilbúna. Hvað tekur það langan tíma? SÍMASTÚLKA: Við erum aðeins í seinni kantinum, gæti verið um 45 mínútur. Ef þér liggur á gætirðu sótt þær um leið og þú nærð í peningana, en það er auðvitað frekar erfitt að flytja pizzur á mótorhjóli... VIÐSKIPTAVINUR: Hverning veistu að ég er á mótorhjóli? SÍMASTÚLKA: Það stendur hérna að bíllinn hafi verið gerður upptækur vegna vangreiðslna á bílaláninu. En Hondan er fullgreidd svo ég gerði ráð fyrir að þú mundir koma á henni. VIÐSKIPTAVINUR: @#%/$@&?#! SÍMASTÚLKA: Gættu þín á orðalaginu, Jón. Þú er þegar búinn að fá á þig einn dóm fyrir að blóta í návist lögreglumanns, í júlí 2006. VIÐSKIPTAVINUR: (orðlaus) SÍMASTÚLKA: Var það eitthvað fleira? VIÐSKIPTAVINUR: Nei, ekkert. Jú annars, hvað með þessa tvo lítra af kók sem fylgja frítt með pizzunum frá ykkur? SÍMASTÚLKA: Því miður, Jón, en í smáa letrinu í auglýsingunni frá okkur stendur skýrum stöfum að við sendum ekki ókeypis gosdrykki til sykursjúkra!!!!!!! |
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka