Bónerfréttir
9.4.05  
Jæja, þá er maður búinn að lifa viku í sælunni! Ég eignaðist á laugardaginn var mína bestu vinkonu (no offence)- við náum alveg æðislega vel saman. Ég er voða góð við hana og strýk henni daglega:o) Hún heitir Ariston (við viljum frekar segja Aniston, eins og í Jennifer) og er grönn uppþvottavél. ÞVÍLÍKUR MUNUR. Æm loving itt! Yeah....
Annars er allt gott að frétta af okkur Krílunum... sem betur fer! Gengum í gegnum hræðilega reynslu í vikunni sem endaði - Guði sé lof- vel. Maður á kannski ekki að vera að skrifa um það hérna í smáatriðum en í stikkorðum var þetta þannig: Læknisskoðun á Bjarti-vont útlit-hjartaómskoðun- auka hljóð= ekkert "óeðlilegt". Gæti elst af honum og við vonum það besta bara;o) Versta sem ég hef upplifað og aldrei verið hræddari á ævinni!! En það er liðið og maður þakkar fyrir að þetta endaði betur en á horfði. Svo er lillinn bara kominn á púst (sem er það leiðinlegasta í heimi!) og í fitun og svo eigum við að mæta í tékk aftur eftir hálfan mánuð. Amman öfundar dóttursoninn af fituninni: Hann fær extra mikið smjör á brauðið og drekkur rjómabland, smjör í matinn sinn og Þykkmjólk sem er liggur við pjúra rjómi. Ojojoj....
En! á meðan ég man: Haldiði ekki að Karen hafi hringt í mig um daginn... Tilkynnti mér að hún BÚI Í HAFNARFIRÐI og var að panta hitting. Hún hitti víst Lindu líka um daginn og náði ekkert aftur í hana þannig að ég lofaði að smala flottustu Mallorcaförum ever saman og finna tíma í eitthvað skemmtilegt. Ég er laus whenever og Karbó líka.. en þið?? Let me know- þetta verður ógó gaman.
Jæja, heyri í ykkur með þetta. Sí jú!

9.4.05 skrifaði Bína

3 Ummæli:

  • Klukkan 9:11 f.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Jii elskan!! Fékk alveg í magann að lesa um litla prinsinn- úff gott að það er búið að finna út úr þessu! Eflaust hræðilega erfitt að lenda í svona spítalabulli:( Vona að þið séuð búin að ná ykkur- knúúúz til ykkar allra...líka "miss Aniston";) HB

     
  • Klukkan 12:58 e.h., sagði Anonymous Nafnlaus…

    Æji leiðinlegt að frétta með Bjartinn, vonandi lagast þetta allt saman ;o*
    Ég er sko alveg til í hitting, ég er búin í prófum 20.apríl, verð þá laus og liðug frá þessu helv...
    Bkv. Anna panna

     
  • Klukkan 10:18 e.h., sagði Blogger Matthildur…

    Jebbs er sko til í Mallorca hitting.... fer á árshátið næsta laugardag annars laus...
    Gott að þetta var ekkert alvarlegt með Bjartmann, verð nú að fara að koma að knúsa hann... maður er nú alltaf í næsta húsi, þ.e. Víðóvallos ;-)

    Kveðja MS

     

Skrifa ummæli

<< Til baka