Bónerfréttir
16.2.05  
Ha? Já það er eitthvað voða lítið að gerast hérna...og við greinilega að valda föstum áskrifendum vonbrigðum... Það er annars bara voða lítið að frétta.... alltaf sama skítaveðrið og maður hreyfir sig varla útúr húsi. Ætlaði að fara með soninn að leika við Emil Gauta í gær (því hann var orðinn innisjúkur) en við fréttum að pleisið þar væri pestarbæli svo að við hættum okkur ekki þangað inn. Bíðum spennt eftir morgundeginum því þá förum við alltaf niðrí kirkju að hitta krakka og mömmur og þá sérstaklega kærustuna hans Bjarts. Hún heitir Kolbrún Ríkey og er 9 mánaða skvísa. Það er svo gaman að sjá aðra krakka og leika með annað dót heldur en manns eigið. Svo lyftist líka brúnin á mömmunum við að hittast svona og spjalla.
Ef ykkur þyrstir í frekari fréttir þá ætlum við að skella okkur á megaviku í kvöld... maður nennir ekki einu sinni að elda þegar veðrið er svona leiðó. Það verður án efa ofsa gott að smakka á einni pizzu og glápa á Gettu betur;o) Eru þetta ellimörk??
Fórum á húsfund í gærkvöldi- gaman að sjá inní aðrar íbúðir sem eiga að vera eins og manns eigin. Það sem kemur mér mest á óvart er að fólk er ekki endilega að nýta sjónvarpsholið...nema fyrir stóla og eitthvað drasl. Eru þar af leiðandi með sjónvarpið inní stofu. Ein á efstu hæðinni fékk að kíkja inn til okkar til að sjá hvernig við nýttum holið sem sjónvarpshol (?). Þá var hún bara með púða þar á gólfinu og eitt lítið sjónvarp sem nýttist sem tölva fyrir strákinn. Mér finnst einhvern veginn íbúðin minnka heilmikið ef við værum með sjónvarpið inní stofu- þá ertu ekki að nýta allt pleisið. Tala nú ekki um ef Logi fær strákana í heimsókn þá get ég horft á sjónvarpið alveg í friði og öfugt. Krakkar hjónanna sem héldu fundinn í gær voru t.d. að horfa á tellíið á meðan við sátum líka inní stofu á fundinum. Jæja, er alveg að missa mig í þessu- bara skil þetta ekki alveg.
Anyways... ef ykkur langar að panta megaviku og horfa á Gettu betur með okkur gamlingjunum í kvöld þá eru allir velkomnir- við nennum allavega ekki útúr húsi;O) (Logi fær að sækja pizzuna hehe)

16.2.05 skrifaði Bína