Bónerfréttir
21.2.05
Gleðilegan konudag í gær konur!
Vonandi dekruðu kallarnir ykkar við ykkur eins og þið eigið skilið;o) Dagurinn var alveg einstaklega góður hjá mér- dekur út í gegn og blóm og alles. Horfðum svo á video, The Notebook, alveg í faðmlögum því þessi mynd er svooooo sæt að hún bara hefur þessi áhrif!
Jæja, fórum í bíó á laugardagskvöldið við djellurnar Matti og Anna. Sáum Closer- frekar skrítin mynd og ekki svona fílgúdd eins og ég hélt að hún væri... Við belgdum okkur út af poppi og kóki og súkkulaði sem er ekki fyrir stelpur þannig að þetta var ekki svo slæmt;O) Enn og aftur töluðum við um hitting og að fara að gera eitthvað..... hvenær ætli það komi að því að maður láti það loksins gerast?? Mig er farið að langa til að djamma ærlega með ykkur aftur og hafa kallana með. Eruð þið með einhverjar hugmyndir? Kannski ég ætti bara að bjóða í partý?
Jæja, ætla að fara að nýta tímann á meðan tætusjúki sefur- fara í sturtu og sjæna mig:o)
Later
21.2.05 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka