Bónerfréttir
25.1.05  
VELKOMIN TIL LANDSINS ELSKU HELGA!!!
Hvað eigum við svo að gera á föstudaginn??? DJAMMA?!
ÖÖÖvita, ehagi? Minns er annars að verða ansi öflugur í djamminu! Datt svo í´ða í bústað síðustu helgi að það eru til myndir af mér í einhverju hláturskasti og ég man ekkert eftir því!! Svona getur maður verið klikk. En mikið svakalega var ken góður daginn eftir. Mmmmmm eeeeelska kfc eftir djamm! Var ekkert rosalega spennt á sunnudaginn að vera að fara að djamma aftur eftir minna en viku- en ég er sko alveg búin að gleyma líðaninni þá. Þetta verður líka ekkert sem einn ken-ari getur ekki lagað!
Linda er búin að skikka kallinn til að vera heima á fös, Matti ætlar að dissa vinnufélaga fyrir okkur (en ekki hvað?). Þannig að það er bara Al Bundy eftir. Geri fastlega ráð fyrir að hún komist- getur varla verið skóli á föskvöldi. Svo það er bara eftir að ákveða hvað við ætlum að gera.... er það ekki bara gamla góða að hittast um 8-9 og hella í sig, fara í fíflaskap og fá hláturskast og hoppa svo niðrí bæ að dansa?? Við finnum nú upp á einhverju skemmtilegu, það er meira vandamál hvar á að hittast.... getum verið heima hjá mér ef Logi og Bjartur skreppa bara í heimsókn á vellina, nema þá verðum við örugglega að fara nokkuð snemma niðrí bæ (ekki seinna en miðnætti) en það þarf ekkert að vera slæmt- lendum þá kannski ekki í röð. Látið mig bara vita ;o) Vonandi hittumst við nú allar áður en á föstudaginn.... kaffihús eða eitthvað kósý...

25.1.05 skrifaði Bína