Bónerfréttir
10.12.04
Komin í samband við umheiminn!!
Jæja elskurnar haldðið ekki að minns hafi loks splæst í nýja tölvu, hin tölvan (fartölva sem Hildur frænka lánaði mér meðan ég er í skólanum) bilaði um daginn og karlinn í tölvuviðgerðinni sagði að ekkert væri hægt að gera.... Hún var aðeins eins og hálfsárs :-( Er vonandi enn í ábyrgð... En sem sagt þá keypti ég mér nýja fartölvu um daginn svo ég kemst nú á netið þegar mér hentar... jeiiiiiii
Annars er maður bara í prófum, er búin í einu og eitt eftir (á mánudaginn) svo þetta er allt að hafast þrátt fyrir að svo leit alls ekki út fyrir um mánuði síðan... hehe þegar við vorum í panikki yfir öllum verkefnunum sem skila átti.... Hefst allt á endanum, mottóið mitt þessa önnina :-)
Er farin að hlakka til að hitta vini mína þegar öllu þessu er lokið og vona ég að fleiri geta mætt þann 17. svo við Anna panna getum nú haldið upp á kvartaldarafmælin (eða eitthvað þannig :-)) okkar.
Jæja essskurnar, látið ykkur líða vel og passið ykkur á jólastressinu.... Snakkast, MS
10.12.04 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka