Bónerfréttir
16.11.04
YOYOYOYOYOOO BÍNS IN DA HÁS!
Hvað segiði gellur? Nú erum við allar að verða jafn GAMLAR ;o) Bara tveir litlir grísir eftir hehehehe....
Allt gott að frétta af mér og mínum... stend hérna í kúkastandi morgun eftir morgun- Bjarti finnst greinilega best að kúka í handklæði þegar hann er að viðra bossann á morgnana. Annars reddaði Linda mér með góðu ráði: setja hann bara á klósettið til að klára, eins og þið hafið kannski séð... Svo skríkir krakkinn þegar ég er að þykjast skamma hann, þannig að þetta er orðin hin besta skemmtun.
Meira að frétta af okkur fjölskyldunni... Við erum að fara austur á daga myrkurs á föstudaginn, komum svo til baka á mánudag. Amma Helga vill frekar passa kútinn sinn heldur en að fara á e-ð ball og draugagöngu;o) Þetta verður rosa stuð- miðilsfundur og allt! Ætla að reyna að mæta á þetta allt saman! Þið eruð velkomnar með líka! Nóg pláss á Múlaveginum;o)
Jæja, verð að rjúka- þrífa kúkahandklæði eftir suma....
16.11.04 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka