Bónerfréttir
29.11.04  
OG ÞAÐ ERU AÐ KOMA JÓÓÓÓL!!
Minns er nú að bíða eftir að andinn komi yfir mig- svo ég geti byrjað að þrífa.... Var samt dugleg í dag: ryksugaði hele pleisið og sófann og allt saman! Maður þurrkar ekkert af fyrr en svona rétt fyrir jól- annað er bara tvíverknaður.
Komum annars úr bústað í gær- búin að vera barnslaus í sólahring! Það gekk bara rooosa vel. Bjartur var eins og engill hjá ömmu og afa eins og honum einum er lagið. Við foreldrarnir bárum okkur ágætlega þennan sólahring líka.... Svoldið skrítið svona fyrst- maður vissi eiginlega ekkert hvað maður átti af sér að gera. Þá var bara ráðið að fá sér bjór í hönd! Svo var spilað og drukkið meira, farið í pottinn svoldið vel hífaður, farið inn að elda og borða, aftur í pottinn og drekka meira.... og svo bara búið! Við átum svo mikið að það sveif bara á mann... svefn- ekki áfengisandi. Þannig að við fórum bara að sofa um 2, Bjartslaus, en það skipti ekki máli hvað varðaði rumsk og svona um nóttina. Svo vöknuðum við klukkan hálf ellefu. Alveg eins og venjulega- þannig að við hefðum alveg getað verið með hann með okkur! Nei, segi svona. Við höfðum öll gott af þessu. Alltíeinu bara að hugsa um sjálfan sig og engan annan! Svo var líka meiriháttar gaman að sækja gullmolann. Maður er svo mikið æði í augum þessara unga! Nothing like it!!
Verst að við höfðum bústaðinn í viku og Logi er að fara í feðraorlof eftir næstu helgi!! Bömmer. Við erum að pæla í að finna okkur bústað til að fara í í desember. Þetta er svo ógó næs...
Jæja, verð að fara að leika við Bjartmann- leiter!!

29.11.04 skrifaði Bína