Bónerfréttir
30.11.04
Hellú ladys!!!!
Ákvað að láta aðeins í mér heyra hér..... Er algerlega dottin úr sambandi við umheiminn og vini mína... hehe... og prófin og lesturinn sem þeim fylgir er ekki einu sinni byrjuð.... omg
Hef semsagt verið að drukkna úr verkefna vinnu síðustu VIKUR.... Hef hangið uppi í skóla alla daga og allar helgar (á milli þess sem ég er í vinnunni, jiiiii hvað það er gott að komast í vinnuna á svona tímum og ekki hugsa um fja.... verkefnin). En þessu fer að ljúka síðasti skiladagur á síðustu verkefnunum er 6. des.... Er í augnablikinu að rembast við að klára 15 bls. ritgerð um eitthvað booooring.... Reyndar ekki svo leiðinlegt efni en við skiluðum um daginn örugglega hátt í 80 bls. verkefni (ef talin eru öll fylgiskjöl, við sjálfar skrifuðum næstum 60 bls.) sem fjallaði að hluta til um þetta efni svo verkefnið verður að mestu stolið.... hehe Á svo eftir eitt hópverkefni sem á nú bara að vera 3 bls. svo það verður vonandi noproblemo :-) (Og kennslan kláruðist í gær... halelúja, var bara fyrir þegar maður hafði um annað að hugsa hehehe)
Ég er semsagt að deyja úr leiðindum, alveg komin með nóg af verkefnavinnu, get ekki beðið eftir að komast í próf (sjaldan sem maður segir þetta :-))
Jæja gaman að heyra í Bínu og vita að einhver á sér líf svona á síðustu og verstu tímum.... get ekki beðið eftir jólum....lalalala....
Well snakkast, MS
30.11.04 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka