Bónerfréttir
9.11.04  
Fann þetta á netinu.

"Kennaraverkfall II The Sequel hefst væntanlega von bráðar. Það væri líkt þessum svíðingum að skella lögum á það. Einkennilegt finnst mér hvað fólk nennir að væla út af þessu verkfalli. Mér þætti nær að menn reyndu að sýna smá samhug með kennurum og styðja þá í kröfu sinni um almennileg laun. Ég dáist að þeim fyrir láta ekki undan þrýtstingi og standa á sínu. Mér finnst þetta til eftirbreytni fyrir þessa húsbóndahollu þjóð.


Vissulega ruglar þetta aðeins ástandið hérna á heimilinu að hafa Alexöndru heima úr skólanum. Það reddast þó allt með góðum vilja. Þetta virðist mér hins vegar vera aðalmálið hjá flestum. Það fer allt í fokking vesen þegar fólk þarf sjálft að fara að hugsa um þessi börn. Þegar það er enginn til staðar til þess að hugsa um þau fyrir okkur... þessir aumu kennarar....


Mér finnst alltaf jafn þreytandi að heyra hvað þetta hafi ofboðslega skaðleg áhrif á börnin. Ég man eftir því að hafa farið í kennaraverkfall sem krakki. Það var fokking hápunkturinn á mínum skólaferli. Fyrir þá foreldra sem hafa áhyggjur af því að samræmdu prófin fari öll í fokk og menntaskólarnir taki ekki við börnunum ykkar og námsferilinn fari allur í rúst... get real... er ykkar barn það eina sem lenti í kennaraverkfalli?

Hystería!"

Þessi maður er minn maður!;o)

9.11.04 skrifaði Bína