Bónerfréttir
30.10.04  

Hej kjútís!!

Jæja elskurnar eitthvað lítið að gerast á þessari síðu þessa dagana :)

Minns skellti sér í bekkjarpartý í gærkveldi, það var svaka fjör og héldu ákv. einstaklingar uppi fjörinu að venju :) Kíktum svo á Hverfis, rak þó fyrst inn nefið á Celtic (hvernig sem það er skrifað) og heilsaði upp á Sigga. Stelpurnar voru nú ekkert á því að hanga á Celtic og dróu mig yfir á Hverfisbarinn. Var svo komin heim um hálf 4 eftir velheppnað kvöld...

Annars lítið að gerast fyrir utan þetta venjulega. Tók próf í siðfræði um daginn og gekk ágætlega, og svo bara brjálað að gera í þessum skóla svona síðustu vikurnar fyrir próf.

Hugsið ykkur stelpur, það eru að koma jól.... Kíkti í Smáralind í dag og þar var allt skreytt og jólaskraut til sölu í búðunum.... þarf að fara að huga að jólagjöfum.....

Jæja elsskurnar, talk to you later.... MS :*



30.10.04 skrifaði Matthildur