Bónerfréttir
1.10.04  
Hææææææææ
Þá er maður kominn heim. Nú þarf maður aftur að verða fullorðinn og elda ofan í sig og þvo af sér fötin.... Helga amma stóð sig sko veeeeel í ömmuhlutverkinu-maður þurfti varla að hugsa þarna fyrir austan. Bjartur stóð sig rosa vel í flugvélinni og sofnaði á leiðinni austur og á leiðinni til baka. Svo var hann vælandi framan í fólkið meira og minna fyrstu dagana-sérstaklega ef hann sá mömmu og pabba innan seilingar. En svo sjóaðist hann nú í þessu og tók liðið í sátt. En fyndnast var að sjá þá félaga, Ara Björn og Bjart, pota í hvor annan! Okkur var boðið í kræsingar til Símonar og Ástu eitt kvöldið og það var sko fjör hjá litlu skrímslunum;o) Pabbarnir höfðu samt svolitlar áhyggjur af því að Ari Björn virtist hafa mikinn áhuga á að skríða UPPÁ Bjart..... ekki alveg að falla í kramið hjá köllunum á meðan mömmunum fannst þetta svo sætt...Svo var Bjartur bara sóttur af ömmu sinni og það gekk víst alveg rosa vel að koma honum í rúmið. Hún kann tökin hún amma.
Þetta var sem sagt alveg æðisleg ferð. Og það frábæra við hana var hvað það var gott að koma heim! Heima er best. Helga amma varð eftir á Seyðis og er alveg buguð af söknuði. Við teljum dagana þangað til að hún kemur í heimsókn til okkar-höldum að það líði ekki langur tími.
Anyways... Maður er varla búinn að stoppa síðan maður kom heim-alltaf eitthvað í gangi- og ekki batnar það um helgina... Berglind og Hlín eru að koma til mín á eftir- svo erum við að fara í matarboð í kvöld hjá pabba hans Loga og Sæunni, á morgun er svo afmæli hjá Þorbergi Níels (unbeliveable, by the way, að hann sé orðinn eins árs!) og svo endum við í matarboði hjá Hörpu og Guðjóni á sunnudagskvöldið. Fjúff! En þetta er bara gaman.
En ein spurning svona í lokin: Á ég að halda saumó í þessum mánuði eða? Hélt reyndar semísaumó í sept. Þá komust bara Anna og Matti.

1.10.04 skrifaði Bína