Bónerfréttir
24.10.04  
Alveg er þetta týpískt!
Logi fór að hjálpa vini sínum að flytja í morgun- minns ætlaði sko þvílíkt að setja Bjart út í vagn og leggja mig svo aftur! En nei, nei. Það má víst ekki- það er eins og krakkinn finni þetta á sér! Svaf fyrst bara í klukkutíma og engin leið til að plata hann aftur til að fara að sofa (hann sefur yfirleitt í svona 3 tíma!) Tók hann þá inn en minn var bara pirraður og greinilega ekki búinn að sofa nóg. Aftur út í vagn klukkutíma seinna- og ég undir sæng. Dottaði í 10 og þá byrjar krakkarassgatið að rumska;o) Ég fer og rugga, hann sofnar. Þá ætla ég ekki aftur að gerast svo kræf og leggjast undir sæng-heldur bara aðeins að halla mér í sófanum. Þá má það ekki heldur! Það er ekki fyrr en ég fer að vaska upp og setja í vél að herrann sefur vært! Það er líka kannski eins gott- ég er ekki búin að stoppa, búin að skúra eldhúsgólfið og moppa íbúðina og sjæna hérna aðeins til... Er nebblega að fá Önnu Stínu og Kristínu samkennara mína í kaffi í fyrramálið. Hef ekki tíma til að gera þetta í kvöld því við skötuhjúin erum að fara út að borða og í leikhús. Sé mig heldur ekki í anda að fara að laga til þegar við komum heim í kvöld þannig að það er ágætt að sonur minn heldur uppi aga hérna á heimilinu;o) Þessi krakki kom með allan pakkann: Algjört draumabarn OG harðstjóri ;o) Maður sleppur sko ekki með einhverja leti. Er helv... fegin núna að hafa ekki fengið að sofa enda var þetta bara einhver ímynduð þreyta- fékk að sofa í alla nótt og til 7 í morgun-gefa að drekka- og þá aftur til hálf 10. Þannig að ekki er maður þreyttur fyrir alvöru, það er bara svo óóóógó gott að lúlla!!!

24.10.04 skrifaði Bína