Bónerfréttir
6.9.04
Jæja, þá er enn ein helgin liðin... Tíminn er svo óóóótrúlega fljótur að líða! Bjartur er bara orðinn 3gja mánaða! Hrikalega fljótur að stækka....
Við skruppum uppí bústað um helgina- heilar tuttugu mínútur frá bænum, hehe. Það var reyndar alveg fínt! Alveg nógu langt. Bústaðurinn er í eigu ömmu og afa Þóru (ef þið eruð einhverju nær) og er rétt hjá Hafravatni. Við fórum á laugardeginum og grilluðum og höfðum það alveg ótrúlega næs. Þetta er svo ógó kósí bústaður: Ekki rafmagn og ekki heitt vatn- það verður alltaf svo kósí stemmning (eins og hjá Begs og þeim) þegar það eru bara kertaljós. Harpa&Guðjón voru líka og Palli&Erla+Óðinn Bragi. Strákarnir voru alveg ótrúlega stilltir - enda svo vel upp aldir;o) En það varð ekkert mikið úr djammi/drykkju hjá svona barnafólki... enda er búið að plana aðra ferð í nóvember og á hún að vera barnalaus. Við vorum alveg til í að samþykkja það en ekki nema eina nótt... Ágætt að taka lítil skref í einu í svona viðskilnaði;o)
En talandi um bústaðaferðir... eigum við ekki að fara í eina slíka?? Baaaara einhverntímann í vetur.. Það væri allavega gaman.
Núna finnst manni haustið sko komið! við þurftum að skrúfa frá ofnunum í gærkveldi því það kólnaði allt í einu svo mikið... Reyndar hlýtt í dag... Svo er Skrattinn byrjaður í skólanum ehagi? Já, já.... það verða komin jól áður en maður veit af..
6.9.04 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka