Bónerfréttir
27.8.04  
OOHHH MY GOD!!!!!
Ég og Bína vorum í bíó að sjá THE NOTEBOOK og ég ætla bara segja ykkur það hér nú að þið VERÐIÐ að sjá hana. Hún er sko miklu meira en æðisleg hún er geggjuð 0g meira, ég bara get ekki lýst því hvað hún er frábær. Þar sem ég grenja yfir öllu þessa dagana hvort sem það er sorglegt, glaðlegt eða bara hreint venjulegt þá er mín komin með tár. Þegar ég kom af þessari mynd var ég svo grátbólgin og stíbluð í nefinu að hver gæti haldið að ég hefði verið grátandi í hálft ár. Ég verð að eignast þessa mynd, ég held svei mér þá að hún fari efst á topp 10 listann minn.

Anyways nóg um myndina, hjá mér og mínum er allt gott að frétta. Við keyptum okkur boðstofuborð í gær og erum ekkert smá montin með það. Versta er að það verður að vera í geysmslu fram í júlí á næsta ári þar sem við flytjum líklegast ekki fyrr en þá. Agnes (sú sem leigir hjá okkur) gerir ráð fyrir því að þau geti flutt þá, við sögðum þeim allavega að taka bara sinn tíma. Þannig við höfum það bara kósý hér í litla skápnum á meðan, gerir fjölskylduna bara nánari haldiði það ekki? Innan ákveðinna marka auðvitað.
Talandi um að haustið sé að koma, þá finn ég bara hvað manni fer að líða vel. Við vorum að keyra heim svolítið seint í gær og það var farið að dimma svolítið og mér fannst þetta ekkert smá æðislegt. Ég get ekki beðið eftir að það komi vetur, helst með nóg af snjó það væri geggjað.
Þ.N. og B.H. hafa það mjög gott. Baldvin sagði við mig í dag að honum finnst ég orðin svolítið feit, hann er viss um að ég sé komin með annað barn í magann (hlutur sem hann er alltaf að biðja um og skilur ekki af hverju ég gat ekki fengið 2 í magann þegar Þ.N. fæddist). Ég sagði honum að ég væri nú ekki komið með annað barn í magann og kannski fengi ég aldrei annað barn í magann. Hann þóttist bara ekki heyra í mér og sagði að hann héldi að þetta yrði stelpa. "mér finnst þú allvega orðin svolítið feit" sagði hann svo aftur (mömmu sinni til mikillar ánægju :o/). Hann er alltaf að panta systir núna og sagði mér að við gætum skírt hana Guðbjörgu eða jafnvel Sóley.
Jæja honybunnys ég ætla að fara drífa mig í háttin þar sem klukkan er að verða 23:00 og ég er orðin svo mikil kella og get ekki vakað mikið lengur.
Ciao

27.8.04 skrifaði Linda