Bónerfréttir
26.8.04
Hello ladys!!!!
Ekki mikið að frétta af mér hér.... bíííð spennt eftir að skólinn byrji.... eða þannig, er ekki alveg að meika það að sumarið er að verða búið og skólinn að byrja.... brrrrr.... Byrja samt ekki fyrr en 6. september (byrjaði 24. ágúst í fyrra minnir mig svo...) svo enn eru nokkrir dagar til að njóta lífsins.... hehehe.
Ég er annars að tapa mér yfir Ólympíleikunum.... er búin að vera niðursokkin í hinar ýmsu íþróttagreinar sem ég hef aldrei fylgst með áður... eins og skotfimi, bæði með riffli og boga, strandblaki, sundknattleik, frekar fyndið þegar karlarnir eru með þessar bráðfyndnu húfur á höfðinu sem bundnar eru undir höku, glímu og svo eru auðvitað þessar hefðbundnu íþróttir sem gaman er að horfa á... eins handboltinn, þar sem Ísland gat ekki neitt :-(, sundið, fimleikar, finnst ótrúlegt hvað þessar litlu stelpur geta gert.... þær verða að vera 16 ára en þarna voru stelpur sem voru 130 á hæð og 29 kg... ótrúlegt...., frjálsar, þar sem Þórey Edda stóð sig þvílíkt vel í stangarstökki - 5 sæti en samt með 10 cm hærra stökk en Vala þegar hún var í 3. sæti.
Hef semsagt legið yfir tv-inu síðustu daga og glápt með mikilli athygli á sportið og er strax farin að sakna þeirra (þó þeir séu ekki búnir.... hehe).
Það var nú svolítið fyndið þegar strandblakið var í gangi... þegar stelpurnar voru að keppa var full áhorfendastúka og helling af ljósmyndurum en svo komu karlarnir að keppa og þá fór helmingur áhorfendanna og aðeins 2 ljósmyndarar fylgdust með leiknum.... Þá vitum við það.....
Það er Matthildur sem talar frá Olympiuleikunum í Aþenu..... over and out.....
26.8.04 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka