Bónerfréttir
24.8.04  
Hæbb!
Hvað segiði svo? Minns er eiginlega farinn að telja niður í stelpupartý þó ég viti ekki einusinni hvenær nákvæmlega það verður;O) OHHH það verður svooooo gaman- ég er aaaalveg búin að ákveða það! Þið megið byrja að semja skemmtiatriðin fyrir mig núna. Ég mæti svo með videokameruna;o) hehehehe.... djö væri það gaman!
Annars halda dagarnir bara áfram hjá manni með sínum vanagang.... Bjartmann stendur sig rosa vel alltaf- nema þegar heyrast einhver læti... þá bregður mínum svo og setur upp þessa óborganlega sætu skeifu og byrjar svo að væla. Og alltaf hlær maður að honum greyinu- ekki hægt annað með svona RJÚPUR eins og Linda orðaði það. Fannst það frekar gott orð yfir svona kveifir (?)
Maður er svo sem ekki búinn að vera að gera neitt frásagnavert þessa dagana.... Fór á fætur klukkan hálf níu í gær og í dag til að keyra Logann í vinnuna til að hafa bílinn- obbolega dúleg. Nýtti bílinn í gær til að fara í strákaheimsókn til Beggýjar. Jámm strákaheimsókn, því Linda kom líka með Þorberg. Þetta er nú meira tippaveldið!
En nú er haustið að koma og þá má "saumaklúbburinn" fara í gang aftur- ehagí? Hver vill verða fyrst til að halda?? Gaman að vita hvort okkur tekst að láta þetta rúlla almennilega núna!
Jæja, vinir mínir eru komnir í heimsókn (Nágrannar) sí jú beibs!

24.8.04 skrifaði Bína