Bónerfréttir
15.7.04
Sælar dömur nær og fjær.
Jæja, þá er litli pjakkur loksins kominn með nafn! Eða... hann er svo sem löngu kominn með nafn- bara loksins búið að opinbera það. Ég held að það séu bara allir sáttir við það- maður heyrir allavega ekki annað;o) Veislan var bara alveg ágæt, reyndar nokkrir Baunar sem ég saknaði.. Þetta var nokkuð þröngt en allt í lagi því veðrið var bara alveg ágætt þannig að sumir fengu að sitja úti á svölum (allt pláss notað). Veitingarnar voru greinilega góðar því það kláraðist næstum hvert einasta snitti! Allir mætt hungry....læk a vúlf! Ég sem treysti á að eiga afganga fyrir saumaklúbbinn hennar múttu sem ætlaði að koma og kíkja á gripinn daginn eftir. En það voru bara engir afgangar og saumaklúbburinn ekki kominn ennþá-þær hafa vitað að það kláraðist allt;o)
Við Loginn gerðum tilraun um daginn að fara að sjá Spiderman (ætluðum varla að tíma að fara í heila kvöldstund frá Bjarti okkar... en amman rak okkur af stað). Það var röð from hell í Smáralindinni þannig að við brunuðum í Álfabakka og sáum Harry Potter. Hann er alltaf skemmtilegur. Svo var brunað heim til að knúsa snáðann en hann var sofnaður (stilltur drengur) og við þurftum að berjast við löngunina til að vekja hann. Sérstaklega Logi- hann er byrjaður að vinna og finnst hann vera að missa af svoooo miklu. Hann mætir í vinnu núna alltaf klukkan 7 til að vera kominn heim 3. Það er alveg frábært!
Svo er tívolíið ennþá hérna. Mínum langar!!! Kannski förum við í kvöld ef veðrið verður gott.......og ef við fáum pössun;o) Það eru svo margir sem maður á inni hjá: Ef ekki mamma-þá Malla. Ef ekki Malla- þá Lilja. Svo er pabbi alltaf að biðja um hann þannig að maður er voða vinsæll ef maður biður um pössun. Kannski best að nýta það á meðan áhuginn er svona mikill hjá öllum... Erum reyndar að fara í brúðkaup næsta laugardag á Úlfljótsvatni. Vantar þá pössun.. á sama tíma er okkur boðið í bústaðinn hjá Möllu og co líka þannig að það verða slegnar tvær flugur í einu höggi og Bjartur settur í pössun í bústaðinn (mútta verður þar líka). Svo ætlum við að gista hjá þeim. Það verður gaman að sjá hvernig hann tekur í það gæinn. Ég veðja á að hann verði bara stilltur og góður eins og honum einum er lagið!
Jæja nóg af þessu í bili! Hafið það bara gott dúllí dúll;o)
15.7.04 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka