Bónerfréttir
8.7.04  
Hola senjoraidas!!!
Er komin til landsins, náði ekkert að fara á neitt netkaffi til að segja hæ... svo ég geri það bara núna.... HÆ ;-)
Þetta var bara æðisleg ferð, vorum í bæ á Spáni sem heiti Salou og er alveg frábær. Er um 1 klst frá Barcelona og ótrúlega skemmtilegur og gott að vera með hjólastóla... :-) Ströndin með eins fínum sandi og hægt er að finna og allt svo hreint og fínt. Þessi ferð gekk bara ótrúlega vel og er ég nú komin í mitt ból, dauðþreytt (enda mikil vinna). Þetta var nú samt ekki eins erfitt og ég hélt sem er auðvitað bara fínt. Við lentum í hinum ýmsum ævintýrum eins og að læsast inn í lest sem búið var að drepa á og slökkva ljósin... vorum þá ekkert komin í bæinn okkar svo við fórum ekkert út en þá var þetta endastöð og drepið var á lestinni og við læstumst inni... hehe Sem betur fer kom eitthvað par og hjálpaði okkur að þvinga dyrnar upp annars hefðum við þurft að bíða eftir ræstifólkinu.... hehe Ekkert frí án ævintýra... Vorum send í næstu lest sem fór með okkur til nágrannabæjar okkar og þurftum við svo að taka leigubíl þaðan... Mikið var nú gott að komast heim það kvöldið, enda grenjandi rigning og svarta myrkur....
Sem sagt allt hið besta að frétta af mér, hlakka til að fara í skírn á sunnudaginn.... :-)

Sjáumst þar, þið sem mætið.... Adios **

8.7.04 skrifaði Matthildur