Bónerfréttir
30.7.04  
Halló...
mínum leiðist þetta veður! Get ekki heldur hætt að hugsa um Matta skratta og Vigdísi á Portugal!! Og Balla bró á Costa del sol.... Það eina góða við þetta veður er að þá þarf maður ekki að vera að svekkja sig yfir því að vera ekki einhvers staðar í útilegu um Verslunarmannahelgina. Voða fegin að vera bara heima. Við vorum NÆSTUM því farin norður með Lindu og co... munaði litlu maður;o) Ef þau hefðu fengið íbúð þar þá hefðum við skroppið. Það hefði verið ógó gaman. Það er annars alveg nóg að gera í bænum: Okkur er boðið í mat í kvöld til ma&pa.. eða við ætlum að elda saman sjávarréttasúpu því mamma á svo ÆGILEGA gott hvítvín sem hún verður að drekka með einhverju svona sjávar-eitthvað. Svo á morgun á að grilla með Palla og Erlu og Óðni Braga og Hörpu og Guðjóni. Keyptum okkur alveg fínustu lundir (slurb).. Það er svo aldrei að vita hvað okkur dettur í hug að gera í vikunni.. ÞVÍ LOGINN MINN ER AÐ FARA Í SUMARFRÍÍÍ! JIBBÍ! Það verður ekkert smá næs að chilla svona við þrjú...
Jæja, heyri í ykkur! Ætla að fara að tékka á unganum mínum (búinn að sofa núna úti í rokinu í þrjá tíma...)

P.s. Mæli með að panta mat af Asian express í Hafnó.. pöntuðum í gær og það var ógó gott... Næstum eins og á Siam! Baaara svona ef þið nennið ekki að elda eitt kvöldið;o)

30.7.04 skrifaði Bína