Bónerfréttir
2.7.04
Hæ. Ákvað að eyða nokkrum orðum hérna því Logi situr inní eldhúsi með vinum sínum á einhverju semí-fylleríi. Það er greinilega verið að hita upp fyrir morgundaginn því þá ætla þeir að steggja einn vininn. Planið er að detta "aðeins" íða í kvöld með vininum svo hann haldi að þetta sé steggið og búist þá alls ekki við neinu meiru... Svo á að hrekkja hann e-ð duglega á morgun.
Vorum annars með Lilju, Tóta, Svölu og Símon vin hans Loga í grilli hérna áðan. Svala er frekar fyndin eftir að Loftur kom í heiminn og gleymdi sér þvílíkt í mömmuleik hérna áðan með Óla dúkku. Móðureðlið er alveg að fara með hana þessa dagana. Það er allt: ,,Hvað er að eeeeelskan?" og: ,,Sjáðu snáðann hvað hann er stilltur." Við erum alveg búin að vera í hláturskasti yfir henni. Svo þarf maður náttlega líka að fá smá extra athygli þegar einhver er að kjassa framan í Loft. Það er svo erfitt að vera allt í einu ekki litla barnið í familíunni.
Það er sossum ekkert að frétta... Ég fór í Kringluna í dag... keypti gallabuxur sem ég passa ekki í- ennþá! Já, kommon maður- ég passa alveg í þær eftir 2 vikur!! Þær voru sko á svo góðri útsölu.... Loga fannst þetta ekkert gáfulegt hjá mér en ég skal komast í þessar fj... buxur einhverntímann. Helga hlýtur að skilja mig-þær voru á útsölu!! Maður sleppir ekki svona góðu verði;o) Ég kemst ekki í nýju buxurnar sem ég var að kaupa, en ég er algjör gella íþeim :) meiri gella en þið hahahaahahaaaaa æjæjæaæ.... Já svaka gella með þær strektar utan um bumbuna. Einu buxurnar sem ég kemst í eru óléttubuxurnar (sem eru samt eiginlega alltaf á hælunum á mér) og buxur sem ég var alltaf í þegar ég var komin 3-4 mán á leið. Þetta er allt að koma samt!!!! GO BÍNA! Steig á viktina þegar Loftur var viku gamall og var þá búin að léttast um 7 kíló! Það var með honum og öllu saman en það er samt svo gaman að segja frá því;o) Kílóin fara núna hægar af en maður er svo óþolinmóður.... mér finnst ég bara eiga að vera komin í samt lag... en svo er bara mánuður síðan ég átti hann þannig að....
Já svo á að skíra næstu helgi. Get ekki beðið! Maður er alltaf að passa sig að missa ekki nafnið hans út úr sér þegar einhver er í heimsókn. Þið sem komist í skírnina verðið að þola smá þrengsli... þetta er ótrúlega fljótt að tínast saman þetta skyldfólk manns. Þess vegna er engum börnum boðið- það er ekki pláss fyrir þau! Maður verður að koma sér í stærra húsnæði áður en maður fermir. Nei þá heldur maður bara veisluna í sal. Jájá Bína! Farin að plana fermingarveisluna! Ekki seinna vænna. (ein alveg að missa sig). Er alveg nógu stessuð fyrir skírnarveisluna- dreymir á nóttunni að allir séu seinir og enginn mættur og barnið ekki komið í skírnarkjólinn og foreldrarnir ekki í sparifötunum, presturinn bíður - hann er tímabundinn... haldiði að maður sé heilbrigður!?
Jæja, þetta er orðið nokkuð gott hjá mér... hef ekki skrifað svo lengi- er alveg að fá útrás hérna. Það hefur annars enginn bauni afboðað sig þannig að ég geri ráð fyrir ykkur!;O)
ps. alltaf gaman á smá fylleríi
2.7.04 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka