Bónerfréttir
3.6.04  
Jæja krakkar!
Lítur út fyrir að minns gangi e-ð framyfir.... en pabbinn vill að fólk giski á kyn og nöfn og eitthvað fleira... hérna. Matthildur er reyndar búin að giska en það sést ekki á síðunni einhverra hluta vegna. Á víst eftir að laga það...
Já- svo ég haldi áfram... var sem sagt að koma úr skoðun og kellan gefur mér annan tíma eftir viku! DEM! Á að hitta hana 9. júní.... :o( Hún sagði reyndar að EF krílið verður komið þá bara afpanti ég en.... fannst hún frekar tala þannig að það myndi ekki gerast. So.. dónt hóld jor breþþ.
Veðrið er allavega gott hérna núna- því miður- þá kemur engin helv... lægð yfir landið. Já- las það að ef lægð er yfir landinu þá fari konur af stað en..... hehehehehe kannski ég fari bara að hlaupa upp og niður stiga og raða kertum um alla íbúð ;o) fyrir Loga sko ;o);o) ef þið skiljið.... verst að maður er ekkert mjög sexý í einhverjum g-strengs nærfötum núna. Ég nota bara svipuna. Nei kommon maður! Ein að verða frekar desperet!! Krakkinn kemur bara þegar hann á að koma, ehagi? Kemur allavega einhverntímann í júní....

3.6.04 skrifaði Bína