Bónerfréttir
19.6.04  
Jæja konur! Til hamingju með daginn.
Hvað er eiginlega í fréttum?? Maður er hálfsambandslaus við umheiminn núna... gerir ekki annað en að glápa ofan í barnarúmið og gefa brjóst. Neinei-segi svona- við erum búin að fara í göngutúr niðrá Víðistaðatún og aftur til baka;o) og nokkrum sinnum í bíltúr og í heimsókn í Steinahlíðina. Þar fékk maður nett sjokk! Allt að verða tómt og ég samþykki þetta ekki alveg... :o( Þetta verður sko skrítið! En svo fer maður í heimsókn á Vellina og verður rosa spenntur því allt er að verða svo flott þar... Þannig að eins og þið sjáið þá hrærist maður í þvílíkum tilfinningum þessa dagana;o)
Annars gengur allt þrusu vel hjá okkur... lillemann sefur bara og sefur og við þurfum að vekja hann til að borða- nema á nóttunni. Þá vaknar hann nú sjálfur. Yfirleitt klukkan 3 og svo aftur klukkan 6. Þá er eiginlega kominn morgunn þannig að það má segja að hann vakni bara einu sinni á nóttunni til að drekka (hehehe voða montin). Svo vonar maður bara að hann haldi þessu áfram og fari ekkert að breyta... Þetta er svo voða ljúft-við sofum alltaf til svona 11. mmmmmmm það er næs.
Fórum í dag í útskriftarveislu til Hörpu mannfræðings án Púlla. Amma gamla kom og passaði í tvo tíma. Hann var bara stilltur- drakk brjóstamjólk úr pela og alles. Var svo bara steinsofandi þegar við komum heim klukkan sjö og er ennþá sofandi (kl.hálf 10). Já... jæja best að fara að ýta við gæjanum fyrst klukkan er orðin svona margt... maður er farinn að leka;o)
Sé ykkur.
ps- Linda og Siggi fá íbúðina á morgun! Ég er sko búin að fá loforð um að fá að hlaupa yfir og kíkja! Til hamingju krakkar!!

19.6.04 skrifaði Bína