Bónerfréttir
7.6.04  
Jæja þá er maður búin að fara á fyrsta fyllerýið sitt. Við ákváðum að skella okkur á sjómannadagsball hérna á Eskifirði og þar sem Paparnir voru að spila varð ég eiginlega að fara. Svo er Þorbergur byrjaður að drekka úr pela og farin að sofa aðeins betur þannig þetta gekk bara voða fínt. En það var alveg svaka stuð mikið dansað og drukkið, enda fékk ég að finna fyrir því daginn eftir. Svo var ég orðin svooo þreytt í fótunum (og frekar skrautleg) þegar ég ákvað að halda heim á leið, vildi auðvitað labba til að reyna láta renna aðeins af mér og haldið ekki að skórnir voru farnir að pirra mig þannig ég ákvað að ganga á táslunum heim og það í rigningu, létt geggjuð. Svo vorum við búin að ákveða að fara heim í dag en þar sem við vorum bæði frekar þreytt og þunn ákváðum við að fresta því fram á þri, er ekkert smá fegin. Væri samt alveg til í að vera aðeins lengur hérna þetta er svo notalegt, reyndar nenni ég ekki að vera mjög lengi hérna án Sigga þannig það er alveg eins gott að koma þá bara aftur í sumar þegar hann kemst í frí og við getum verið lengur. Veit hins vega að Baldvin er ekkert á það að fara héðan. Tilkynnti okkur Sigga það þegar við vorum að vera komin að hann ætlaði að kaupa hús við hliðin á ömmu Fjólu og búa á Eskifirði.

Svo núna er bara að fara finna leigendur þar sem við fáum íbúðina eftir 13 daga, ekkert smá spennt fæ meira að segja fiðring í magann við að segja það. Atvinnuleitin gengur ekkert allt of vel hjá mér, reyni að sækja um svona 3-5 störf í viku og fæ bara endalausar synjanir en samt er ég nú ekkert gífurlega stressuð yfir þessu, nenni eiginlega ekki að fara vinna fyrr en í ágúst vona bara að ég verði komin með eitthvað þá.

Jæja bið að heilsa ykkur krúsíbollurnar mínar.

7.6.04 skrifaði Linda