Bónerfréttir
1.6.04
Hey!
Nothing to say.... er bara að drepa tímann þangað til maður fer að sofa. Við vorum að koma úr bíó. Maður verður nú að nýta hvert kvöld sem gefst til að fara út úr húsi á meðan maður getur;o) Við stundum það að fara í heimsóknir og bíltúra og svoleiðis þessa dagana. Þetta er nú alveg að koma vona ég. Minns er orðinn svoooo þreyttur og feitur.
Fórum annars að sjá Kill Bill 2. Hún var alveg ágæt- allt, allt öðruvísi en fyrsta myndin! Flott pæling þetta með ofurhetjurnar- hef aldrei pælt svona í þessu....
Hvítasunnuhelgin flaug hjá... spiluðum og spiluðum um helgina. Það er bara gaman. Fórum til Hörpu og Guðjóns á sunnudagskvöldið til að spila og kíktum á nýja erfingjann í leiðinni- þau voru að fá sér ógó sæta litla kisu. Hún heitir Matthildur! Ég spurði auðvitað af hverju Matthildur. Þau vildu fá eitthvað flott nafn sem sæmir svona hefðardömu! Þar hefurðu það Matti skratti!;o) Þetta var ágæt lausn hjá þeim- allir í vinahópnum að koma með krakka svo þau bara ættleiddu eitt stykki. Og hún er algjör dúlla-segir kattavinurinn sjálfur.... En það var alveg fyndið hvað hún þurfti að klifra á mér og hafði alveg sérstakann áhuga á brjóstunum... mætti halda að það væri e-ð ætt þar...;o) ef sogið verður nógu lengi hehehe - oj
Ég er annars búin að spurja Loga hvort hann ætli einhvern tímann að smakka brjóstamjólk- ónei! Hann heldur ekki!!! þvílíkt ógeð! Hann er alveg sáttur við að ímynda sér bara hvernig hún er á bragðið... Ég auðvitað hætti ekkert fyrr en hann smakkar smá dropa! Þetta er alveg Friends-atriði!
Jæja... hef greinilega ekkert merkilegt að segja... ákvað bara að þóknast Eyrúnu og eyða getgátum Helgu að ég væri inná fæðingardeild...
Sjáumst bara síðar gellur og hafið það mighty gott. luv u´s!
1.6.04 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka