Bónerfréttir
23.6.04
Hellú girlís!!!
Það er nú ekkert nýtt að frétta af mér.... síðustu vikur hafa snúist um það að vinna, vinna og aftur vinna.... Hef reyndar verið í fríi síðustu daga svona til að fá smá pásu frá liðinu áður en ég fer með þeim út til Spánar, bara svo ég þurfi nú ekki að láta keyra mig beint á Klepp þegar ég kem heim.... nei segi nú svona, þau eru bara elskur þessar elskur... hehe...
Ég er sem sagt að fara til Spánar á morgun... jibbí... það á einmitt að fara að rigna hér á sólskinsparadísinni Íslandi svo þetta passar allt saman .... hehe... Fékk bara smá nasaþef af blíðunni...
Jæja ætli ég verði ekki að fara að huga að ferðatöskunni... verð víst að pakka e-u niður.... hummm
Jæja elsku gullmolarnir mínir, vildi bara láta ykkur vita af fyrirhugaðri ferð svo þið gætuð farið að sakna mín.... hehe
Kannski maður láti heyra e-ð í sér frá Spáni, ef ég finn netkaffi það er að segja.... ADIOS ***
23.6.04 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka