Bónerfréttir
24.5.04  
ÞAÐ ER KOMIÐ SUMAR dúddírú.....
Og ég hangi bara inni... kíki í mesta lagi út á svalir. Nennti nebblega ekki að keyra Loga sexy icelandic rockstar í morgun. En þá var ég ekkert búin að fatta að veðrið gæti orðið svona gott... :o( Er annars búin að taka hérna smá þrifnaðaræði: þrífa krílakommóðuna og þvo fleiri krílaföt, strauja og svoleiðis. Maður heldur alltaf í vonina um að þetta fari að gerast þó það séu tvær vikur eftir í settan dag. Koma og fara samdráttaverkir á 5 mín. fresti og svo verður ekkert úr þessu... skemmtilegt samt;o)
Berglind og Emil Gauti komu hérna áðan til að stytta mér stundir....... í svona hálftíma.... Beggý búin að gleyma að henni var boðið í barnaafmæli klukkan 3. ÉG minnti hana á það! Þetta er orðið slæmt... ég er farin að vita dagskrána frá degi til dags hjá öðru fólki...Bína: The human reminder! Ennnnnn góðir hálsar- þið megið ekki treysta á það mikið lengur. Ég hef vonandi um allt annað að hugsa eftir svona 2 vikur ;O)
Jæja.. ætla að fara að strauja... sé ykkur! (ég er alltaf heima;o)) (",)

24.5.04 skrifaði Bína