Bónerfréttir
11.5.04  
Bleeeeezzzzzzzr girlís og takk fyrir síðast.
Grillið er sko búið að vera í notkun síðan það var sett saman... Linda og Siggi buðu okkur í læri tækifæri hérna á sunnudaginn eftir afmælið og svo í gær var ekkert annað að gera en að grilla hamborgara. Hugsa að við fáum okkur afgangssúpu í kvöldmatinn í kvöld- er bara ekki búin að finna út hvernig ég get grillað hana;o) hahahaha voða fyndin! Annars geri ég nú ekki ráð fyrir að Loginn fái sér nokkuð að borða í dag: hann er sko búinn að vera með ÞVÍLÍKA magapest að ég þori varla að sofa við hliðina á honum! Lokaði hann inní herbergi áðan og sagði honum bara að hvíla sig í dag og drekka sprite. Shit hvað ég ætla EKKI að fá þessa pest! Algjör vibbi. Hann er nú hættur að spúa og liggur alveg back með hita og beinverki. Það væri nú huggulegt að vera í þessum athöfnum komin rúma 8 mánuði á leið! Vá maður- eftir því sem ég hugsa meira út í þetta skil ég ekkert í mér að vera hérna heima í þessu pestarbæli... ætti kannski að koma mér út....
Svo hringdi Hugur áðan:,,Jááá.... er Logi við?" ,,Nei, hann er sofandi." (hafði ekki hugmynd um að hann hefði gleymt að hringja í vinnuna og láta vita að hann væri veikur). Kom bara þögn í símann.....,,Eeeeeee.....Er hann veikur eða...?" ,,Já! Lét hann ekkert vita?!"..... Svo fannst mér þetta svo fyndið-voða ísí góing: nei, hann er sofandi.... hehehehe æjæjæj
Anývei.. nú fer að líða að Júróvisjón. Væri alveg til í að fá mér bjór í tilefni dagsins en..... nei,nei segi svona. Er farin að hafa svo gaman af því að horfa á allar hinar fyllibytturnar skvetta í sig og fara á röflstigið og alles.
Jæja, ætla aðeins að fara að huga að kallinum og drífa mig svo eitthvert út...

svona fer ég á fyllerí þessa dagana;o)
góður í sólbaði!

11.5.04 skrifaði Bína