Bónerfréttir
19.4.04  
Blessuð blíðan!
Maður kemst sko í sumarfíling þegar veðrið er svona dag eftir dag.... Var að koma úr skólanum, vorum að raða í okkur kræsingar. Áttum að koma með eitthvað ætt með okkur í síðasta tímann í einu faginu og audda át maður eins maður gat í sig látið... Ogó gott mar.... ;-) (Svo þykist maður alltaf vera í e-u aðhaldi... humm) Annars sé ég glitta í magaþjálfan hans pabba héðan frá tölvunni... öll familían er semsagt komin með bakteríuna (í bili alla vega) og fórum við mamma út að skokka saman (og Ísak sem blés ekki úr nös ;-)) í gær. Ég er því núna að taka það út, þ.e. harðsperrur (meira að segja í maganum þrátt fyrir að hafa ekki gert neinar magaæfingar... vírd?!?). En það dugar ekkert að slaka á og því brunum við Vigga frænka eflaust á æfingu upp í Hress seinni partinn....

Jæja nú kveð ég að sinni, Matthildur orkubolti :-P

19.4.04 skrifaði Matthildur